Innlent

Fjár­mála­ráð­herra sakar þing­mann á ó­sam­stæðum sokkum um skít­kast

Heimir Már Pétursson skrifar
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra.
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra. Vísir/vilhelm

Fjármálaráðherra sakaði þingmann Pírata um að koma ítrekað upp í ræðustól Alþingis á sokkaleistunum með pólitískt skítkast. Þingmaðurinn vildi fá skýringar á mismunandi vöxtum vegna leiðréttinga á greiðslum almannatrygginga.

Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata sagði í fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun að mistök hefðu verið gerð við setningu laga um almannatryggingar árið 2016 þegar Bjarni Benediktsson hefði þá einnig verið fjármálaráðherra. Þessi mistök hafi kostað skattgreiðendur 4,8 milljarða og leiðréttingin hundruð milljóna.

„Miðað við þetta klúður upp á um 6,1 milljarð og að viðbættum mistökum við búsetuskerðingar, landsréttarmálið og ýmislegt fleira er fyrri spurning mín til ráðherra: Af hverju fara sjálfstæðismenn svona illa með almannafé,“ sagði Björn Leví.   

Bjarni sagði að honum væri algerlega fyrirmunað að skilja hvernig þingmaðurinn vildi heimafæra frumvarp upp á fjármálaráðherra sem hann hefði ekki lagt fram en hafi verið samþykkt samhljóða á Alþingi.

„Og segir síðan; hér er dæmi um að Sjálfstæðisflokkurinn fer illa með almannafé. Ég verð bara að segja virðulegur forseti  mér er algerlega orðið misboðið. Þessi háttvirti þingmaður sem kemur hingað á sokkaleistunum upp í ræðupúlt, í sitt hvorum sokknum ítrekað, með pólitískt skítkast í raun og veru, ekkert annað. Hefur ekkert annað fram að færa hér í þingsal,“ sagði Bjarni.   

Það væri ekki hægt að taka fyrirspurn sem þessa alvarlega. Hins vegar kunni að koma upp álitamál við leiðréttingu bóta, til að mynda um prósentu vaxta, upphafsdag vaxta og svo framvegis. Ríkið reyndi að gæta sanngirni í málinu.

„Það er talað hér um  ýtrustu sanngirni. Hérna er aðili sem fær greidda 10 prósenta vexti á meðan 31.999 aðrir aðilar fá ekki 10 prósent heldur 5,5 prósent. Hvar er sanngirnin í því,“ spurði Björn Leví.

„Ég hef sagt hér í þessum stól af þessu sama tilefni að þegar fólk á kröfu á ríkið þá mun hún innheimtast. Það getur ekki staðið á fjárheimildum til að greiða lögmætar kröfur á hendur ríkinu,“  sagði Bjarni Benediktsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×