Óútreiknanlegt veðrið gerir upplifunina einstaka Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 18. febrúar 2020 07:00 Arkitektinn Marcos Zotes hjá Basalt arkitektum fjallaði um íslensku náttúruböðin á hönnunarvikunni í Stokkhólmi. Samsett/Basalt arkitektar
Basalt arkitektar hafa haft mikil áhrif á baðmenningu á Íslandi með einstökum náttúruböðum víða um landið. Basalt hlaut meðal annars Hönnunarverðlaun Íslands fyrir framlag sitt. 15 arkitektar og hönnuðir mynda teymið hjá Basalt sem stofnað var af Sigríði Sigþórsdóttir fyrir rúmum tíu árum síðan. Arkitektinn Marcos Zotes er hluti af þessu teymi sem staðsett er í Reykjavík en hann hélt fyrirlestur á hönnunarvikunni í Stokkhólmi á dögunum. Hann fór meðal annars yfir hönnunarferlið og það hvernig fyrirtækið teiknaði náttúruböð þar sem íslenska náttúran fær að njóta sín. Þar talar hann meðal annars um þau áhrif sem veðrið hér á landi getur haft á heimsóknir fólks í náttúruböðin. Dezeen tók upp erindið og má horfa á það í spilaranum hér að neðan. Á meðal þeirra verkefna sem Basalt arkitektar hafa unnið tengd jarðhita er spa hluta Bláa lónsins og einnig Retreat hótelið í sömu byggingu, Guðlaug á Akranesi, Geasea sjóböðin á Húsavík, Vök baths við Egilsstaði, sundlaugin á Hofsósi og svona mætti lengi telja. Einnig hefur Basalt hannað sýningar, einbýlishús, hjúkrunarheimili, skóla og aðrar byggingar í samstarfi við verkfræðistofur og stofnanir. Spa hluti Bláa lónsins var byggður upp þannig að gestir fá einkaklefa, afnot af húðvörum Bláa lónsins og fleira. Umhverfið á að sýna Bláa lónið í sinni fallegustu mynd. Markmiðið var að spa upplifunin væri einstök og að fólk myndi finna þar friðsæld og vellíðan. Hefur spa hluti lónsins meðal annars verið valinn „Ultimate Mind-Blowing Spa“ hjá British Airways. Spa Bláa lónsins hefur vakið athygli erlendis.Mynd/Basalt Arkitektar Fyrsta fimm stjörnu hótelið á Íslandi sem Basalt tók þátt í að hanna við Bláa lónið hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga. Það vann meðal annars verðlaunin besta Arkitektúr verkefni ársins 2019 í Architecture Masterpriz og var einnig besta „resort“ hótelið á AHEAD Europe 2019. Hönnunin hlaut einnig the German Design Award og lesendur National Geographic kusu það nýlega besta „destination“ hótel heims. Dezeen lesendur völdu hótelið eitt af 20 bestu verkefnum ársins og Basalt arkitektar komust á topp tíu listann yfir bestu arkitektarstofurnar. Hótel heilsulind Bláa Lónsins var árið 2018 valið einn af hundrað bestu stöðum heimsins Samkvæmt Time Magazine. Frá Retreat hóteli Bláa lónsins.Mynd/Basalt arkitektar Hótelið var þungamiðja umfjöllunar Bloomberg-fréttastofunnar um „leynileg hótelherbergi“ sem finna má víða um heim. Eitt slíkt herbergi er að finna á The Retreat-hótelinu. Um er að ræða næstum 200 fermetra lúxussvítu en nóttin á herberginu kostar 10.500 dali, rúmlega 1.1 milljón króna, og ekki má bóka það í styttri tíma en tvær nætur. Hótelið við Bláa lónið hefur hlotið fjölda verðlaunaMynd/Basalt arkitektar Geosea sjóböð á Húsavíkurhöfða var á síðasta ári á lista TIME yfir hundrað bestu áfangastaði heims. Vatnið í böðunum kemur úr tveimur borholum sem ekki tókst að nýta sökum sjávarseltu en hafa nú fengið nýjan tilgang. Basalt hannaði einnig Vök baths náttúrulaugarnar á bökkum Urriðavatns í útjaðri Egilsstaða, Instagram vinsælu sundlaugina á Hofsósi og Guðlaugu á Akranesi sem er vinsæll baðstaður heimamanna og ferðamanna. Guðlaug – heit laug í grjótvörn við Langasand á Akranesi hlaut í desember Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu árið 2019. Sýning þeirra, Lava eldfjalla- og jarðskjálftamiðstöðin á Hvolsvelli, hlaut árið 2018 hin virtu Red Dot verðlaun en þetta eru ein eftirsóttustu hönnunarverðlaun sem veitt eru. Guðlaug á Akranesi hlaut Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu.Mynd/Basalt Arkitektar „Við á Basalt arkitektum vinnum ávallt með hvert og eitt verkefni út frá eðli þess og staðsetningu. Okkar fyrsta verk er að fara á staðinn og kynna okkur staðhætti og menningarsögu viðkomandi staðar. Við leitum fanga í umhverfinu og náttúrunni hverju sinni,“ sagði Sigríður Sigþórsdóttir stofnandi Basalt arkitekta þegar stofan tók við Hönnunarverðlaunum Íslands 2018 fyrir arkitektúr í baðmenningu á Íslandi. Verðlaunin voru veitt fyrir Sjóböðin á Húsavík og Retreat Hotel í Bláa lóninu. „Við erum að umbreyta náttúru og nánasta umhverfi og leggjum áherslu á að það sé í sátt; í stað átaka verði til leikur sem eykur gæði staðarins; geri hann aðgengilegan og áhugaverðan. Við höfum að leiðarljósi að ekkert jafnast á við íslenska náttúru til að öðlast sálræna endurheimt svo ég vitni í Pál Líndal umhverfissálfræðing,“ sagði Sigríður einnig við þetta tilefni. Í rökstuðningi dómnefndar voru Basalt arkitektar sagðir hafa einstakt lag á að tvinna mannvirki saman við náttúruna. Þeir hafi sýnt gott fordæmi þegar kemur að hönnun baðstaða. Byggingarlistin sé í hæsta gæðaflokki þar sem hvert smáatriði er úthugsað og rými hönnuð af virðingu og látleysi. Geosea á Húsavík.Mynd/Basalt arkitektar Það eru mörg verkefni í vinnslu hjá Basalt í augnablikinu. Basalt arkitektar er eitt af fimm teymum sem var valið fyrir samkeppni um hönnun brúar yfir Fossvog. Eins og fjallað hefur verið um á Vísi áætlar Basalt svo að ljúka framkvæmdum árið 2022 á Fjallaböðunum í Þjórsárdal. Forsætisráðherra veitti í nóvember samþykki sitt fyrir því að Skeiða- og Gnúpverjahreppur gangi til samninga um uppbyggingu hótels í hlíðum Rauðakambs í Þjórsárdal innan þjóðlendu sem nefnist Búrfells- og Skeljafellssvæði. Ætlunin er að reisa 5.000 fermetra hótelbyggingu og baðaðstöðu sem geti rúmað á bilinu 40 til 45 herbergi eða um hundrað gesti. Sjá einnig: Milljarða króna uppbygging í Þjórsárdal með fjallaböðum og hóteli inni í fjalli BASALT ARKITEKTAR Í augnablikinu vinna Basalt arkitektar líka að verkefninu FABRIC fyrir Lágmúla sem var valið í samkeppninni Re-inventing Cities um grænar þróunarlóðir. Mynd frá samkeppninni um lóðina í Lágmúla.Mynd/Basalt arkitektar Keppnin er haldin á vegum samtakanna C40 en í þeim eru borgir sem sækja fram í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Keppnin snýst um að þverfagleg teymi móti framtíðarsýn fyrir lóðirnar með það að meginmarkmiði að þar rísi fyrirmyndarbygging í sjálfbærni.
Ferðamennska á Íslandi Tíska og hönnun Tengdar fréttir Breiðhyltingar fagna andlitslyftingu Arnarbakka Arnarbakki 2-6 hefur fengið andlitslyftingu og er alls kyns spennandi starfsemi að hefjast í húsinu 28. nóvember 2019 13:51 Hundrað þúsundasta gestinum fagnað á Hvolsvelli Því var fagnað í dag að hundrað þúsundasti gesturinn heimsótti Lava safnið á Hvolsvelli það sem af er árinu 2018. 17. október 2018 16:15 Veitir samþykki fyrir stóru hóteli í Þjórsárdal Forsætisráðherra hefur veitt samþykki sitt fyrir því að Skeiða- og Gnúpverjahreppur gangi til samninga við Rauðakamb ehf. um uppbyggingu hótels í hlíðum Rauðakambs í Þjórsárdal innan þjóðlendu sem nefnist Búrfells- og Skeljafellssvæði. 14. nóvember 2019 13:45 Vannýttar borholur notaðar til sjóbaða Vonast eftir að ferðamenn dvelji lengur á Húsavík sem hefur verið ein helsta áskorun ferðaþjónustunnar á svæðinu 11. september 2018 20:30 Mest lesið Fullkominn brúðkaupsdagur í frönskum kastala Lífið Dauðlangar í kynlífsdúkku en óttast álit annarra Lífið Play gjaldþrota: Hvað geta Laufey og Viagra kennt okkur? Lífið Fagnar gagnrýni á „rasshausa-ummæli“ sín Lífið „Léleg“ hönnun gervigreindar reyndist mannanna verk Menning Maður geti þurft að díla við „konu sem er á túr“ og í vondu skapi Lífið Kynntust í Keflavík og gista saman í villu í Kenýa Ferðalög „Hættið að senda mér gervigreindarmyndbönd af pabba“ Bíó og sjónvarp Enginn í joggingbuxum í París Lífið Andri og Anne selja í Fossvogi Lífið Fleiri fréttir Fullkominn brúðkaupsdagur í frönskum kastala Play gjaldþrota: Hvað geta Laufey og Viagra kennt okkur? Dauðlangar í kynlífsdúkku en óttast álit annarra Fagnar gagnrýni á „rasshausa-ummæli“ sín Silja Rós og Magnús eiga von á dreng Andri og Anne selja í Fossvogi Ljúffeng gulrótarkaka í morgunmat „Þetta fólk myndi ekki rata í Víkina með Google Maps“ Fór á skeljarnar eftir siglingu um Miðjarðarhafið Maður geti þurft að díla við „konu sem er á túr“ og í vondu skapi „Mikilvægt að íslenskt samfélag virði alla sem Íslendinga“ Gefur endurkomu undir fótinn Enginn í joggingbuxum í París Guðrún er með sólarsellurafmagn í sautján fermetra húsi sínu Embla Wigum flytur aftur á Klakann Helgi Ómars útskrifaður sem heilsumarkþjálfi Stelur af Sigga Bond: „Þá ætla ég að tala við Hannes Hólmstein“ „Finn ekki fyrir pressu“ Þórunn Elísabet og Jón selja í Vesturbænum Götulistamaðurinn Jójó látinn Hvernig er best að byggja upp traust? Þótti ekki viðeigandi að gefa fagaðilum gervitittlinga „Guð skapaði þig og hann gerir ekki mistök“ „Finnst við oft gleyma þeim sem geta ekki tjáð sig“ Dreymir um að finna fólkið sem gaf hana frá sér Krúttlegustu áheyrnarprufur ársins Kossaflens á klúbbnum Sjóðheitar skvísur í hvolpajóga brutu næstum Internetið Sárþjáður Eyfi sendur með sjúkrabíl og skellt í aðgerð „Hálfur áratugur með þér my love“ Sjá meira
Breiðhyltingar fagna andlitslyftingu Arnarbakka Arnarbakki 2-6 hefur fengið andlitslyftingu og er alls kyns spennandi starfsemi að hefjast í húsinu 28. nóvember 2019 13:51
Hundrað þúsundasta gestinum fagnað á Hvolsvelli Því var fagnað í dag að hundrað þúsundasti gesturinn heimsótti Lava safnið á Hvolsvelli það sem af er árinu 2018. 17. október 2018 16:15
Veitir samþykki fyrir stóru hóteli í Þjórsárdal Forsætisráðherra hefur veitt samþykki sitt fyrir því að Skeiða- og Gnúpverjahreppur gangi til samninga við Rauðakamb ehf. um uppbyggingu hótels í hlíðum Rauðakambs í Þjórsárdal innan þjóðlendu sem nefnist Búrfells- og Skeljafellssvæði. 14. nóvember 2019 13:45
Vannýttar borholur notaðar til sjóbaða Vonast eftir að ferðamenn dvelji lengur á Húsavík sem hefur verið ein helsta áskorun ferðaþjónustunnar á svæðinu 11. september 2018 20:30