Enski boltinn

Cham­bers frá í allt að níu mánuði

Anton Ingi Leifsson skrifar
Calum Chambers.
Calum Chambers. vísir/getty

Calum Chambers, varnarmaður Arsenal, verður frá næstu sex til níu mánuðina eftir meiðslin sem hann hlaut í leik gegn Chelsea á dögunum.

Arsenal staðfesti þetta í yfirlýsingu sinni nú fyrr í dag en hann er með slitin krossbönd í vinstra hné.

Mikel Arteta, sem tók við Arsenal í síðasta mánuði, sagði að liðið þyrfti að fara meira á markaðinn eftir meiðsli Chambers.







Arteta er sagður vilja styrkja varnarstöðurnar en hann er sagður funda með forráðamönnum Arsenal fyrr en síðar.

Arsenal er í 10. sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir góðan sigur á Manchester United í gærkvöldi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×