Juventus kastaði frá sér tveggja marka for­ystu gegn Sassu­olo

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ronaldo svekktur í kvöld en hann náði ekki að skora.
Ronaldo svekktur í kvöld en hann náði ekki að skora. vísir/getty

Juventus mistókst að stíga risa stórt skref í átt að ítalska meistaratitlinum er liðið gerði 3-3 jafntefli við Sassuolo á útivelli í dag eftir að hafa náð tveggja marka forystu.

Það virtist stefna í stórsigur Juventus. Afmælisbarnið Danilo skoraði á fimmtu mínútu og sjö mínútum síðar tvöfaldaði Gonzalo Higuain forystuna.

Filip Djuricic minnkaði hins vegar muninn fyrir Sassuolo á 29. mínútu og staðan var orðin jöfn á sjöttu mínútu síðari hálfleiks er Domenico Berardi skoraði.

Sassuolo-menn voru ekki hættir og komust yfir á 54. mínútu er Frensco Caputo skoraði en einungis tíu mínútum síðar jafnaði Alex Sandro fyrir Juventus.

Fleiri urðu mörkin ekki og lokatlöur 3-3. Juventus er með sjö stiga forskot á Atalanta en Inter getur minnkað forskotið í sex stig með sigri á Spal á morgun.

Fimm umferðir eru eftir af ítalska boltanum en Sassuolo er í áttunda sæti deildarinnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira