200. mark Kane hélt Evrópu­draumum Totten­ham á lífi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Kane, Son og Winks fagna.
Kane, Son og Winks fagna. vísir/getty

Tottenham skaust upp í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 3-1 sigri á Newcastle á útivelli.

Heung-Min Son kom Tottenham yfir á 27. mínútu með laglegu skoti fyrir utan teig en Matt Ritchie jafnaði metin á 56. mínútu.

Það kom fáum á óvart að Harry Kane skoraði annað markið eftir klukkutímaleik en eftir góða fyrirgjöf Steven Bergwijn, stangaði Kane boltann í netið.

Kane innsiglaði svo sigurinn á 90. mínútu er hann skallaði frákast eftir skot Erik Lamela í netið. Lokatölur 3-1.

Tottenham er í 7. sætinu með 55 stig, þremur stigum á eftir Wolves sem er í 6. sætinu, en Newcastle er í 13. sætinu með 43 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira