Enski boltinn

Engin mistök komið upp í 9000 leikjum en gæti nú kostað Sheffield United sæti í Meistaradeild Evrópu

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Mun þetta atvik halda Sheffield frá Meistaradeildinni og Aston Villa í úrvalsdeildinni?
Mun þetta atvik halda Sheffield frá Meistaradeildinni og Aston Villa í úrvalsdeildinni? Matthew Ashton/Getty Images

Fyrsti leikur ensku úrvalsdeildarinnar eftir þriggja mánaða hlé var leikur Aston Villa og Sheffield United í gær. Leikurinn var ekki mikið fyrir augað og lauk honum með markalausu jafntefli.

Gestirnir frá Sheffield komu þó knettinum yfir marklínuna í fyrri hálfleik en á einhvern ótrúlegan hátt missti Hawk Eye-marklínutæknin sem og dómaratríó leiksins af því þegar boltinn fór yfir línuna. Er þetta í fyrsta skipti sem Hawk Eye-tæknin virkar ekki en alls hefur hún verið notuð í 9000 leikjum.

Hvað gerðist?

Oliver Norwood, miðjumaður Sheffield, tók aukaspyrnu inn á vítateig Aston Villa sem Ørjan Håskjold Nyland, markvörður heimamanna, greip en lenti í kjölfarið inn í markinu eins og sjá má á myndinni sem fylgir fréttinni sem og í myndbandi hér að neðan sem Sheffield birti á Twitter-síðu sinni.

Michael Oliver, dómari leiksins, benti einfaldlega á úrið sitt er leikmenn Sheffield fögnuðu því sem þeir héldu að væri fyrsta mark úrvalsdeildarinnar í yfir 100 daga. Dómarar fá skilaboð í úr sín sem gefa til kynna að boltinn hafi farið yfir marklínuna. Það var ekki fyrr en í hálfleik sem Oliver og aðstoðardómarar hans komust að því að boltinn hefði farið yfir línuna.

Samtök úrvalsdeildardómara á Englandi gáfu út eftir leik að samkvæmt reglugerð IFAB þá hafi ekki verið gripið til myndbandsdómgæslu, VAR, þar sem dómarar leiksins hafi ekki fengið skilaboð um að boltinn hefði farið yfir línuna þó svo að það hafi verið augljóst í endursýningum.

Þá hefur Hawk Eye-fyrirtækið gefið það út að leikmenn hafi byrgt myndavélum fyrirtækisins – sem greina hvort boltinn sé allur farinn yfir marklínuna – sýn. Þetta er í fyrsta skipti sem Hawk Eye-tæknin gerir mistök og hefur fyrirtækið beðist afsökunar.

Sá sem sér um samfélagsmiðla Sheffield United var ekki alveg að kaupa ástæður Hawk Eye og segir einfaldlega að það hafi gleymst að kveikja á kerfinu fyrir leik.

Chris Wilder, þjálfari Sheffield, var eðlilega hálf orðlaus að leik loknum enda um ótrúleg mistök að ræða. Hefði Sheffield United unnið leikinn hefði liðið farið upp í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 46 stig, stigi meira en Manchester United og aðeins tveimur minna en Chelsea sem situr í hinu margrómaða fjórða sæti.

Svo gæti farið að fimmta sæti dugi til að komast í Meistaradeild Evrópu fari svo að bann Manchester City frá leikjum á vegum knattspyrnusambands Evrópu standi.

Í stað þess er Sheffield í sjötta sæti með 44 stig, stigi minna en Manchester United. Þá heldur Aston Villa í vonina um að halda sæti sínu í deildinni en liðið er í 19. sæti með 26 stig, aðeins stigi frá öruggu sæti, þegar níu umferðir eru eftir.


Tengdar fréttir

Draugamark er enski fótboltinn snéri aftur

Aston Villa og Sheffield United gerðu markalaust jafntefli er þeir mættust í fyrsta leiknum eftir kórónuveiruhléið en nýliðarnir áttust bak við luktar dyr á Villa Park.

David Luiz allt í öllu er Arsenal tapaði fyrir City

David Luiz átti erfiðan dag er Arsenal tapaði 3-0 fyrir Manchester City í öðrum leik dagsins en dagurinn í dag markaði upphafið að 92 leikjum á næstu vikum er enska úrvalsdeildin verður kláruð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×