Sónar-hátíðin til Íslands í fyrsta sinn 28. september 2012 08:00 stuð á sónar Fatboy Slim og Lana Del Rey stigu bæði á svið á Sónar-hátíðinni í sumar.
Hin heimsfræga tónlistarhátíð Sónar verður haldin í fyrsta sinn í Hörpunni í Reykjavík dagana 14. til 16. febrúar á næsta ári. Þetta staðfesti skipuleggjandinn Björn Steinbekk við Fréttablaðið en gat að öðru leyti ekki tjáð sig um hverjir kæmu þar fram. Um er að ræða eina af þekktari tónlistarhátíðum Evrópu. Hún hefur verið haldin í Barcelona á Spáni frá árinu 1994. Frá 2002 hefur hátíðin fært út kvíarnar og verið haldin í São Paulo, Tókýó og Höfðaborg. Að undanförnu hafa London, Frankfurt, Seúl og Buenos Aires bæst í hópinn og núna er röðin komin að Íslandi. Samanlagt sækja um 150 þúsund manns hátíðina á ári hverju. Sónar er þekkt fyrir elektró- og indítónlist, auk þess sem frægir popparar hafa troðið upp á hátíðinni. Meðal þekktra flytjenda í Barcelona í sumar voru Fatboy Slim, New Order, Hot Chip, Lana Del Rey, The Roots, James Blake og Squarepusher. Í fyrra stigu á svið á hátíðinni M.I.A., The Human League, Aphex Twin, Underworld og Dizzee Rascal. Talið er að um þrjátíu flytjendur taki þátt í Sónar hér á landi og verður helmingur þeirra erlendur. Fyrir í Reykjavík er Iceland Airwaves-hátíðin sem er haldin á hverju hausti við fádæma góðar undirtektir. - fb
Lífið Sónar Tónlist Mest lesið Einar á Söndru Bullock mikið að þakka Lífið Valerie Mahaffey er látin Lífið Race Across the World-keppandi látinn eftir bílveltu Lífið Jóhanna Guðrún gæsuð Lífið Á loks réttinn að öllum plötunum sínum Lífið Krakkatían: Lilo & Stitch, Skólahreysti og útskriftir Lífið „Ég fæ ekki á broddinn nema Knicks vinni“ Lífið Matti Matt nú meistari Lífið Yfir tvö hundruð tryllitæki sýnd um helgina Lífið samstarf Sætustu systur landsins skáluðu fyrir Birni Lífið Fleiri fréttir Sigur Rós í Handmaids Tale Einn heitasti plötusnúður í heimi á leið til landsins Nauðsynlegt að gera upp fortíðina Frumflutti „Hver er sá besti“ í Fíladelfíu árið 1985 Kærleiksbomba frá GusGus Nýtt lag frá VÆB-bræðrum: „Bíðið bara, það verður epic!“ „Maður er í elífu straffi sem tónlistarmaður, getur ekki gert neitt annað“ Óhræddir við raunverulegar tilfinningar Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Sjá meira