Sport

Gunnlaugur Jónsson til KR

Knattspyrnumaðurinn Gunnlaugur Jónsson hefur gengið frá þriggja ára samningi við KR, en hann var áður fyrirliði Skagamanna. Gunnlaugur sagði ákvörðun sína ekki síst byggða á því að þjálfarinn Teitur Þórðarsson væri tekinn við stöðu þjálfara hjá félaginu. Gunnlaugur hefur verið einn allra besti varnarmaður Landsbankadeildarinnar undanfarin ár og verður KRingum án efa mikill fengur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×