Sjúklingar liggja á kaffistofum Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 26. október 2014 14:54 Dæmi eru um að setja þurfi sjúklinga á hjartadeild inn á kaffistofu. Vísir/GVA
Læknar hafa gríðarlegar áhyggjur af stöðu Landspítalans og skorti á eðlilegu rekstrarfé spítalans. Þetta segir skurðlæknir á spítalanum og að boðskapur þeirra sé ekki að ná í gegn til ráðamanna. Staða Landspítalans var til umræðu í þætti Sigurjóns M. Egilssonar, Sprengisandi, á Bylgjunni í morgun. Tómas Guðbjartsson, hjarta- og lungnaskurðlæknir var á meðal gesta. Hann sagði lækna almennt hafa gríðarlegar áhyggjur af spítalanum. Mikilvægt væri að endurnýja húsnæði spítalans en finna mætti mörg dæmi þess að sjúklingar hafi fundið verulega fyrir plássleysinu á spítalanum. „Móðir vinar míns sem var lögð á gang á hjartadeild og hafði verið á gjörgæslu daginn áður, hún er færð inn á hjartadeild. Það voru margir sjúklingar þar og fjórir sjúklingar á gangi og hún er sett á kaffistofuna beint af gjörgæslunni. Þegar maður gekk inn á þessa deild þá skammaðist maður sín fyrir að þetta gerðist, meira að segja á minni vakt. Það er auðvitað bara staðreynd eins og kom fram í Kastljósi um daginn að rúmanýtingin er yfir 100% á spítalanum en á að vera í kringum 80% á svona stofnun.“ Tómas segir lækna vera að berjast fyrir eðlilegu rekstrarfé fyrir spítalann. „Við erum eiginlega bara hálf ráðþrota hvernig við eigum að taka á þessu. Það er augljóst að okkar boðskapur er ekki að ná alla leið í gegn, allavega ekki til ráðamanna,“ sagði Tómas Guðbjartsson.
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Fleiri fréttir Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Sjá meira