Innlent

Spurður út í fjármagnið

Aðalsteinn Á. Baldursson vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið á fundi norrænna verkalýðsleiðtoga í matvælaiðnaði á dögunum. Samkvæmt venju ræddi hann stöðu verkafólks, efnahagsástand og helstu verkefni verkalýðshreyfingarinnar á Íslandi, en þegar hann lauk máli sínu spurðu menn lítið út í skýrslu hans, heldur upphófust spurningar um íslensku fjárfestana sem væru að kaupa banka, verslanir og fleira í nágrannalöndunum. Einkum vildu menn vita hvaðan fjármagnið kæmi. "Ég var alls ekki spurður hvort þetta væru rússneskir peningar," sagði Aðalsteinn. "Spurningar voru mjög varfærnislegar, en maður fann að þeir hafa mikið velt þessu fyrir sér." Aðalsteinn sagði Dani mest hafa spurt, en fulltrúar hinna Norðurlandanna hefðu einnig tekið þátt í umræðunum. Aðalsteinn sagðist hafa átt erfitt með að svara spurningum þeirra til hlítar. "Enda átta ég mig ekki sjálfur til fulls á því hvaðan þessir peningar koma."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×