Pólverjunum meinað að tjá sig 13. október 2005 19:33
Pólsku verkamennirnir fimm sem starfa fyrir fyrirtækið Sputnikbátar á Akranesi hefur verið bannað af leigumiðluninni í Póllandi að tjá sig um launamál sín að sögn Vilhjálms Birgissonar formanns Verkalýðsfélags Akraness. Skúli Thorodsen framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands segir að þeim hafi einnig verið bannað að kynna sér rétt sinn á Íslandi hjá hérlendum verkalýðsfélögum. "Við höfum ekki bannað þeim neitt og ég veit ekkert um það hvað þeirra vinnuveitendur í Póllandi hafa gert, það kemur okkur einfaldlega ekki við," segir Ingólfur Árnason einn af eigendunum Sputnikbáta. Vilhjálmur fékk þær upplýsingar hjá samstarfsmönnum pólverjanna að þeir fimmmenningar hefðu sjötíu og sjö þúsund krónur á mánuði hver en í samningi þeirra er kveðið á um að þeir vinni að minnsta kosti tíu klukkustundir á dag en Vilhjálmur fór á vinnustað þeirra eftir að Verkalýðsfélaginu hafði borist beiðni um að kanna fyrirtækið vegna gruns um að þar störfuðu erlendir verkamenn án atvinnuleyfis. Vilhjálmur hefur nú lagt inn kæru til sýslumannsins á Akranesi. Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður fyrirtækisins, segir að löglega hafi verið að samningunum staðið og að þar séu íslenskir kjarasamningar virtir. Hvorki hann né Ingólfur gáfu upp hversu mikið greitt var fyrir verkamennina fimm en Vilhjálmur sagði í viðtali í morgunþætti á Talstöðinni í gær að Sputnikbátar hefðu greitt 2,1milljónir fyrir þriggja mánaða störf þeirra en það nemur 140 þúsundum fyrir hvern verkamann á mánuði sem er nokkuð undir lágmarkslaunum. Öllu minni upphæð kæmi þó í hlut verkamannanna því þóknun leigumiðlunarinnar er innifalin. Að sögn Vilhjálms barst verkalýðsfélaginu svo samskonar beiðni í gær um að annað fyrirtæki yrði kannað með sama hætti og er það mál nú í athugun. Ingólfur hvatti Vilhjálm í morgunþætti Talstöðvarinnar í gær til að kanna sem flest fyrirtæki og gaf það sterklega í skyn að mjög víða væri starfsmannahaldi fyrirtækja háttað með þessum hætti.
Fréttir Innlent Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira