Vopnaður maður braust inn í hús á Hellu og hafði í hótunum við fólk Birgir Olgeirsson skrifar 22. febrúar 2016 11:09 Maðurinn veitti ekki viðnám við handtöku. Vísir/Stefán
Karlmaður vopnaður hnífi braut sér leið inn í hús á Hellu skömmu eftir hádegi á föstudag og hafði í hótunum við fólk. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi en þar segir að maðurinn hvarf á braut á líkamsmeiðinga. Leitað var aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra til að leita að manninum sem fannst í húsi í þorpinu. Sérsveitarmenn handtóku manninn sem veitti ekki viðnám við handtökuna. Hann var fluttur í fangageymslu á Selfossi. Við húsleit á heimili mannsins fundust 14 lítrar af landa. Maðurinn var kærður fyrir húsbrot, eignaspjöll, hótanir og áfengislagabrot. Hann var látinn laus að yfirheyrslu lokinni. Þá kom upp eldur kom í geymslu í íbúðarhúsi að Tjaldhólum á Selfossi uppúr klukkan þrjú á laugardag. Slökkvilið Brunavarna Árnessýslu réði niðurlögum eldsins sem hafði ekki náð sér á strik vegna þess að rýmið var lokað og súrefni komst ekki að nema í takmörkuðu magni. Talsvert tjón varð vegna sóts en minna vegna eldsins. Grunur er um að eldurinn hafi kviknað út frá rafmagnstengi. Lögreglan segir einnig frá vinnuslysi við Búrfellsvirkjun á miðvikudag. Þar missti starfsmaður verktaka framan af fingri þegar hann varð á milli keðja sem voru notaðar til að hífa upp lóð. Maðurinn var fluttur á slysadeild Landspítala þar sem gert var að sárum hans. Í síðustu viku voru 18 ökumenn kærðir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi. Flestir á þjóðvegi 1 í Rangár- og V- og A- Skaftafellssýslum. Sá sem hraðast fór var á 137 km hraða í Eldhrauni á ísuðum vegi. Sama dag á sömu slóðum voru nokkrir til viðbótar kærðir fyrir að fara of hratt. Lögreglan segir þetta vera talsvert áhyggjuefni því þarna séu í mörgum tilvikum ökumenn sem ekki hafa reynslu af akstri í snjó og hálku. Lögreglan segist til að mynda hafa stöðva för eins ökumanns sem reyndist ölvaður á 117 kílómetra hraða austan við Hvolsvöll um kvöldmatarleytið á miðvikudag.
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fleiri fréttir Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Sjá meira