Illviðri tefja siglingar sólarhringum saman Svavar Hávarðsson skrifar 24. desember 2014 07:00 Skipið sé 14.600 tonn og siglir stöðugt óháð veðri og vindum. Mynd/Eimskip
Vörugámar hafa tapast af tveimur skipum Eimskips á siglingaleiðinni á milli Íslands og Evrópu að undanförnu. Sjómenn muna vart annað eins sjólag þar sem hvert illviðrið hefur rekið annað frá því í nóvember. Persónulegir munir, eins og búslóðir, hafa ekki tapast við óhöppin, er talið víst. Ólafur William Hand, upplýsingafulltrúi Eimskips, segir að 20 tapaðir vörugámar segi aðeins söguna að litlu leyti hvað varðar þær aðstæður sem sjómenn á flutningaskipum á siglingaleiðinni eru að vinna við. „Þetta er eiginlega búinn að vera hreinn hryllingur frá því í byrjun nóvember. Veturinn byrjaði með djúpum lægðum sem skiluðu hörðum austanáttum en lagðist svo í hina áttina. Niðurstaðan er sú að svæðið á milli Færeyja og Íslands hefur verið eins og sjóðandi nornapottur, eins og skipstjórnarmennirnir lýsa þessu,“ segir Ólafur og bætir við að ölduhæð hafi dögum saman verið tíu til tólf metrar - eða eins og reisuleg skrifstofubygging. „Menn geta kannski gert sér í hugarlund þessar vinnuaðstæður þar sem útilokað er að sofa sólarhringum saman, en heilt yfir hafa skipin verið einum til tveimur sólarhringum lengur á leiðinni vegna þessara aðstæðna,“ segir Ólafur. Það hafsvæði sem er sýnu verst viðureignar er þar sem gámarnir fóru í sjóinn á Dettifossi, eða 70 til 80 sjómílur norðaustur af Færeyjum. Annað skip Eimskips, Goðafoss, missti fyrr í þessum mánuði fjóra gáma í sjóinn á svipuðum stað. Ólafur segir að í tilfelli Goðafoss hafi engar persónulegar eignir fólks tapast, og talið að það sama eigi við um gámana 20 sem nú eru farnir veg allrar veraldar. Þó eigi eftir að ganga úr skugga um það með óyggjandi hætti þegar Dettifoss kemur til heimahafnar. „Það sem er þó mest um vert er að engin slys hafa orðið á áhöfnum skipanna, en um borð í Goðafossi og Dettifossi eru 13 manns í áhöfn. Því má þakka hversu vel menn eru þjálfaðir og leggja ekki út í neina óvissu - eins og að senda menn út á dekk þegar aðstæður eru hvað erfiðastar. Betri menntun sjómanna, sem aðrar þjóðir líta til, hefur skilað því að alvarlegum slysum hefur fækkað. Það er nefnilega ekkert sjálfgefið að sigla hér á milli á vetrum eins og þessum og skila öllum heilum í höfn. Það má þakka reynslu þeirra og menntun að þakka, og erfitt fyrir fjölskyldur þessara manna að vita af þeim við vinnu í þessum aðstæðum,“ segir Ólafur.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Fleiri fréttir Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Sjá meira