Þora ekki til Bolungarvíkur 17. október 2005 23:43 "
Bolvíkingar láta sig nú flestir hafa það að keyra undir Óshlíðinni þótt þeir séu nú meðvitaðir um þá hættu sem því fylgir, en ég tel að fáir aðrir geri sér ferð til Bolungarvíkur eins og ástandið er," segir Jónas Guðmundsson, sýslumaður í Bolungarvík og formaður Almannavarnanefndar. Einn þeirra sem þó lét sig hafa það að fara um Óshlíð var Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, en hann var hætt kominn síðasta laugardag: "Ég var þarna á ferð rétt fyrir klukkan átta og þá hafði fallið grjót þarna á veginn og það munaði bara nokkrum mínútum að ég eða einhver annar hefði orðið fyrir." Kristinn hefur rætt við Guðna Ágústsson, varaformann Framsóknarflokksins, sem mun ræða hugsanlega gangagerð á svæðinu á næsta ríkisstjórnarfundi. "Það er mjög aðkallandi að það verði gerð göng um Óshlíð og ríkisstjórnin getur brugðist við því, það er vitað hvað þetta kostar og hvernig má gera þetta svo málið er bara pólitískt," segir Kristinn. Hann segir að göngin myndu kosta um það bil tvo og hálfan milljarð. Kristinn spurði samgönguráðherra um viðhorf hans til gangagerða á svæðinu í fyrirspurn á Alþingi síðastliðið vor: "Hann var þá ekki sammála mér um það að málið væri aðkallandi og ég var ekkert kátur með það." Almannavarnanefnd Bolungarvíkur kom saman í gær til að ræða það hættuástand sem íbúar á svæðinu búa við en margir Bolvíkingar sækja vinnu og þjónustu til Ísafjarðar. Í skýrslu sem jarðfræðingurinn Esther Hlíðar Jensen og snjómælingamaðurinn Jóhann Hannibalsson unnu fyrir tveimur árum segir að talsverð hreyfing sé á 30 til 40 metra langri sprungu efst í Óshyrnufjalli sem færist í aukana og ástæða sé til að óttast að allstór stykki geti hrunið úr brúninni yfir veginn og í sjó fram. Birna Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar, segir að á fjórðungsþingi Vestfirðinga sem haldið var í byrjun mánaðarins hafi verið lögð fram ályktun um að göng verði gerð á svæðinu því ekki verði unað við þetta hættuástand.
Fréttir Innlent Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent „Þetta er erfiður mánudagur“ Innlent Fleiri fréttir Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Sjá meira