Ólína klagar Finnboga 17. október 2005 23:43
Ólína Þorvarðardóttir hefur farið fram á að útvarpsráð fjalli um fréttaflutning Finnboga Hermannssonar, forstöðumanns Svæðisútvarps Vestfjarða, um málefni Menntaskólans á Ísafirði. Í bréfi sínu til útvarpsráðs segir Ólína að Finnbogi hafi "ítrekað farið út fyrir mörk hlutleysis og óhlutdrægni í málflutningi sínum sem oftar en ekki hefur verið beint gegn skólameistara Menntaskólans á Ísafirði. Hefur þetta verið gert án þess að leitað hafi verið réttra upplýsinga hjá skólanum, mál borin undir skólameistara eða honum gefinn kostur á að tjá sig um það sem fram hefur komið um embættisverk hans eða önnur málefni skólans. Hefur umfjöllun fréttamannsins á köflum verið bæði persónuleg og ærumeiðandi, auk þess að hafa takmarkað upplýsingagildi." Þá segir Ólína að Finnbogi hafi "fyrirgert öllu trausti skólans til að upplýsa hlustendur á málefnalegan hátt um embættisfærslu skólameistara eða annað sem skólann varðar". Með bréfi Ólínu til útvarpsráðs fylgir samantekt Björns Jóhannessonar, lögfræðings Menntaskólans á Ísafirði í máli sem Ingibjörg Ingadóttir, enskukennari við skólann, höfðaði gegn skólanum. Í samantektinni kemur fram hvað í umfjöllun Svæðisútvarps Vestfjarða teljist hlutdrægt og er nefnd umfjöllun um dómsátt í máli Ingibjargar gegn menntaskólanum, umfjöllun um auglýsingar á lausum kennarastöðum við menntaskólann og umfjöllun um ráðningu í stöðu verkefnastjóra forvarna- og félagsmála við menntaskólann. "Þegar ég fjallaði um dómsmálin byggði ég fréttaflutninginn á gögnum; eðli málsins samkvæmt. Eins leitaði ég eftir sjónarmiðum hennar meðan hún vildi eitthvað við okkur tala," segir Finnbogi Hermannsson, sem vísar ásökunum Ólínu á bug. "Annars er þetta ekkert nýtt, hún hefur hótað mér útvarpsráði næstum því eftir hverja frétt og mér er kunnugt um það að hún hafi hótað umsjónarmanni Kastljóss líka, svo hún hótar í allar áttir og það var nú kominn tími til að maður væri klagaður fyrir útvarpsráði; sextugur maðurinn og búinn að vinna við þetta í tæp tuttugu ár," segir Finnbogi.
Fréttir Innlent Mest lesið Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Fleiri fréttir Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Sjá meira