Meistarakokkur eldar á bensínstöð 18. desember 2011 09:00 Alex, Einar og Emil hafa undanfarna mánuði undirbúið opnun Nam í tveimur löndum, í Svíþjóð og á Íslandi. fréttablaðið/vilhelm
Alex Sehlstedt er matreiðslumaðurinn sem sér um matinn á nýja asíska skyndibitastaðnum Nam. Hann hefur eldað á Michelinstað og rekið sína eigin veitingastaði, en langaði að kynna asíska matargerð sína fyrir fleira fólki. „Mér finnst gaman að gera eitthvað alveg nýtt,“ segir sænski meistarakokkurinn Alex Sehlstedt sem á heiðurinn að matseðli nýs veitingastaðar Serrano-manna, Nam. Alex gekk til liðs við þá Einar Örn Einarsson og Emil Helga Lárusson sem yfirmatreiðslumaður Serrano-staðanna í Svíþjóð, en hann er eftirsóttur kokkur í heimalandi sínu og hefur unnið á Michelin-veitingastað ásamt því að reka sína eigin staði sem notið hafa mikilla vinsælda. Hann stökk svo á tækifærið til að þróa hugmynd að nýjum asískum skyndibitastað með tvíeykinu, því að eigin sögn þrífst hann á áskorunum og nýjungum. „Ég hef alltaf haft mestan áhuga á því að gera eitthvað sem hefur ekki verið gert áður. Fyrir fimmtán árum opnaði ég til dæmis veitingastað með miðausturlenskri matargerð í Svíþjóð, en þá skildi enginn af hverju ég var að því.“ Alex stofnaði svo annan veitingastað í Stokkhólmi og bauð þar upp á kínverska „fine-dining“ matargerð, sem er öðruvísi asískur matur en fólk á Vesturlöndum á að venjast að sögn kokksins. „Eftir að ég hætti með hann langaði mig að finna leið til að kynna þessa matargerð fyrir fleira fólki, og datt þá í hug að hægt væri að gera það með veitingastað sem væri hversdagslegur, fljótlegur og ódýr, í samvinnu við Einar og Emil.“ Nam opnaði í vikunni á N1-bensínstöðinni á Bíldshöfða, og það má ímynda sér að stökkið sé frekar stórt fyrir kokkinn sem hefur unnið að þróun matseðilsins undanfarna mánuði. Hann viðurkennir að hann sakni þess að elda á fínu veitingahúsi, en honum finnist þetta verkefni skemmtilegt og spennandi og hugmyndin frábær. „Ég hef trú á þessari hugmynd að geta boðið upp á bragðgóðan mat úr fersku hráefni á góðu verði. Annað sem mig langar að koma til leiðar er að hækka virðingarstig kínverskar og asískrar matargerðar hér. Þetta er ekki allt matur sem bragðast eins, líkt og margir virðast halda. Þeir hafa ekki haft tækifæri til að komast að öðru, en núna bjóðum við upp á mat frá Kína, Kóreu og öðrum löndum, sem Íslendingar hafa ekki smakkað áður.“ Alex er á leið aftur til Stokkhólms en hlakkar til að fylgjast með viðtökum Íslendinga á veitingastaðnum. „Ég þekki Reykjavík náttúrulega ekki mjög vel en mér fannst að einhverju leyti undarlegt að byrja með staðinn á bensínstöð. Hins vegar hefur verið löng röð hjá okkur síðan við opnuðum, ég vona að það haldi áfram að vera mikið að gera svo að við getum opnað fleiri staði í borginni.“ bergthora@frettabladid.is
Mest lesið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Ung húð þarf ekki tíu skrefa húðrútínu Lífið samstarf Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Hvað veistu um… árið 2010? Lífið Fleiri fréttir Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Sjá meira