Sársauki nálarinnar venst seint 16. febrúar 2012 11:30 Jón Þór Ísberg vill meina að strákar séu yfirleitt hugaðri en stelpur og fái sér stærri húðflúr. Það á ekki við í tilviki Fríðu Rakelar Kaaber sem fær sér mynd sem þekur allt bakið. Fréttablaðið/stefán
Húðflúr eru ávanabindandi viðurkennir Fríða Rakel sem er að þekja á sér bakið með japanskri mynd en það er Jón Þór Ísberg sem á heiðurinn af verkinu. Hann vill meina að húðflúr séu að verða stærri og litríkari. Húðflúr „Ég get alveg viðurkennt að þetta er ávanabindandi,“ segir háskólaneminn Fríða Rakel Kaaber en hún hefur verið að vinna í að láta þekja á sér bakið með japanskri mynd síðan árið 2006. Fríða Rakel fékk sér fyrsta húðflúrið þegar hún var 18 ára gömul og sá alltaf mikið eftir því. „Ég elti tískubylgjur þess tíma og fékk mér tákn á mjóbakið. Illa ígrunduð ákvörðun hjá mér og mig langaði að reyna að fela það,“ segir Fríða sem í kjölfarið fór að skoða myndir og tákn á netinu. Myndin sem varð fyrir valinu er af japönsku kirsuberjatré með páfugli í bakgrunninn, en myndin nær yfir allt bak hennar. „Kirsuberjatréð táknar lífið í heild sinni. Blómin sem vaxa á þessum trjám blómstra og deyja fljótt og það minnir mann á að lífið er stutt og því um að gera að njóta þess,“ segir Fríða en listaverkið hefur tekið sinn tíma og er ekki enn tilbúið. Fríða segist ekki þora að reikna út hvað húðflúrið hefur kostað hana en viðurkennir að það séu nokkrir hundrað þúsund kallar á bak við verkið. Henni finnst það samt ekki hár verðmiði fyrir eitthvað sem endist ævilangt. „Það er eitthvað við það að fá sér húðflúr. Að undirbúa sig andlega og líkamlega fyrir hvern tíma, ná að kyngja sársaukanum og loks spennufallið þegar það er búið. Manni líður eins og maður hafi afrekað eitthvað,“ segir Fríða en þrátt fyrir að vera orðin ansi vön nálinni viðurkennir hún að sársaukinn venjist seint. „Nei, þetta er misvont en alltaf vont.“ alfrun@frettabladid.is
Mest lesið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Rassaumhirða karla í sókn Lífið Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar Lífið Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úrslit HM Tíska og hönnun Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Lífið samstarf Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Fleiri fréttir Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Sjá meira