Batman kom fyrst fram 1939 í myndasögum eftir Bob Kane og Bill Finger. Þetta var á gullöld myndasagnanna og Blakan tók harkalega á alls kyns óþjóðalýð vopnaður skammbyssu og var dómari og böðull.
Þetta breyttist í lok sjötta áratugar síðustu aldar með tilkomu Myndasögueftirlitsins (The Comics Code Authority) sem taldi að sögur með morðingjum eins og Jókernum gætu hvatt til unglingaafbrota. Jókernum var í kjölfarið breytt í saklausan hrekkjalóm í samræmi við reglur eftirlitsins.
Árið 1973 hvarf Jókerinn aftur til upprunans og endurheimti sitt myrka og harðneskjulega eðli þegar mennirnir á bak við upprunalegu Ra’s al Ghul söguna, þeir Denny O’Neil og Neil Adams, gerðu sína fyrstu Jókersögu í Batman #251.
Áhugaverð heimild á íslensku
Þessi saga kom nýlega út í íslenskri þýðingu í fyrsta sinn í 5. hefti Leðurblökunnar. Tímasetning útgáfunnar er óneitanlega býsna heppileg þar sem Jókerinn er þar sem hann vill helst vera, milli tannanna á fólki, þessi dægrin og tilvalið fyrir þá sem vilja kryfja margklofna persónu hans betur að kynna sér hvernig hann lét 1973 samanborið við stöðu hans í dag.
Jared Leto klikkar
Jókerinn er plássfrekur í eðli sínu þannig að hann er áberandi aukapersóna í Suicide Squad en leikarinn Jared Leto reið samt heldur mögru hrossi frá þeim hildarleik og hann situr uppi með þann svartapétur að þykja almennt lélegasti Jókerinn.Nálgun Letos á sturlaða persónuna er í sjálfu sér alveg ágæt en hann líður fyrir að í einhverri örvæntingarfullri tilraun til frumleika lítur Jókerinn út eins og fáviti, útbíaður í ljótum húðflúrum með fáránlegar málmtennur. Sjálfsagt allt viðleitni til þess að fjarlægja persónuna stórkostlegri túlkun Heaths Ledger í The Dark Knight.

Cesar Romero var Jóker síns tíma
Sjálfsagt eiga margir notalegar minningar um Cesar Romero í hlutverki Jókersins þar sem hann gerði Adam West, í Batman-náttfötunum, lífið leitt í gömlu sjónvarpsþáttunum og kvikmyndinni sem var lóðbeint framhald af sjónvarpsgríninu.Enda svo sem lítið út á fíflaganginn í Romero að setja í þá daga og Jókerinn hans virkaði stórvel á sínum tíma en stenst vitaskuld ekki samanburð við nútímalegri túlkanir persónunnar og allra síst 21. aldar útgáfurnar tvær sem bera höfuð og herðar yfir trúðahjörðina eins og hún leggur sig.
Nicholson hlæjandi í bankann
Jack Nicholson er í fremstu röð ofleikara og sló hvergi af þegar hann fékk heilu fjallgarðana af seðlum fyrir að leika Jókerinn 1989 í Batman eftir Tim Burton. Jack er í raun talinn fyrsti bíómynda Jókerinn en klikkhausinn birtist þarna á skjánum í fyrsta sinn síðan Romero lék hann í sjónvarpsbíómyndinni.Jókerinn hans Nicholsons byrjar sem hinn kaldlyndi og húmorlausi mafíósi Jack Napier sem lendir í áflogum við Michael Keaton í Batman-búningnum og endar með að steypast ofan í efnaúrgang sem sviptir hann húðlitnum og vitinu.
Nicholson stal myndinni fyrirhafnarlítið og skyggði á Keaton, Kim Basinger og alla aðra sem að henni komu og hvað sem segja má um hann í hlutverkinu þá verður ekki af honum tekið að hann fór skellihlæjandi í bankann.

Phoenix tókst hið ómögulega
Joaquin Phoenix nýtur þess umfram Jared Leto að myndin hans er góð og pæld. Vissulega umdeild og það er í þessu tilfelli hið besta mál og á meðan fólk rífst um boðskap Joker og hvað sé í raun verið að deila á eru fæstir að pæla í samanburði við Heath Ledger. Sem hentar í raun báðum leikurum þar sem mannjöfnuður þeirra er fáránlegur þar sem myndirnar eru gerólíkar og persóna Jókerins líka.Ledger er og verður bestur
Heath Ledger var í einu orði sagt stórkostlegur Jóker í The Dark Knight og þar sýndi leikarinn hvers hann var megnugur og varð enn frekar öllum harmdauði þegar hann kvaddi þennan heim skömmu síðar.Krafturinn og ógnin í túlkun hans á þeirri óútskýranlegu illsku sem þarna birtist í trúðabúningnum var slík að í raun hefði mátt teljast svo gott sem útilokað fyrir aðra leikara að bregða sér í hlutverkið sem Ledger gerði algerlega að sínu.
Á Jaret Leto sannaðist að það er ekki nóg að fara í sýrðar áttir með búning og gervi Jókersins en Joaquin Phoenix fann réttu leiðina fram hjá Ledger þar sem ólík nálgun, allt annað umhverfi, enginn Batman og ný sköpunarsaga gera gæfumuninn.