Enski boltinn

Eiður Guð­john­sen, Juan Mata og Son Heung-min

Anton Ingi Leifsson skrifar
Félagarnir þrír.
Félagarnir þrír. vísir/getty/samsett
Jose Mourinho stýrði fyrsta leik sínum sem stjóri Tottenham í gær er Tottenham vann 3-2 sigur á West Ham í Lundúnarslag.

Fyrsta mark Tottenham í gær gerði Son Heung-min og komst hann þar með á lista með Eiði Smára Guðjohnsen og Juan Mata meðal annars.

Eiður Smári skoraði fyrsta og eina mark leiksins er Chelsea vann 1-0 sigur á Manchester United árið 2004 í fyrsta leik Portúgalans á Brúnni.







Juan Mata hlaut svo heiðurinn að skora fyrsta markið undir stjórn Jose Mourinho hjá Manchester United er liðið vann 3-1 sigur á Bournemouth árið 2016.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×