Villa upp í fimmtánda sæti

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Aston Villa er að gera góða hluti
Aston Villa er að gera góða hluti vísir/getty
Aston Villa komst aftur á sigurbraut í ensku úrvalsdeildinni með sigri á Newcastle í kvöld.

Conor Hourihane skoraði fyrsta mark leiksins beint úr aukaspyrnu og kom heimamönnum yfir á Villa Park eftir um hálftíma leik. Anwar El Ghazi tvöfaldaði forystu Villa fjórum mínútum síðar og þar við sat.

Lokatölur urðu 2-0 og með sigrinum fer Villa upp í 15. sæti deildarinnar.

Steve Bruce var að snúa aftur á sinn gamla heimavöll, en hann var rekinn frá Villa í október 2018.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira