Langþráður sigur West Ham kom á Brúnni

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
vísir/getty
West Ham náði loksins í sigur í ensku úrvalsdeildinni þegar liðið vann Chelsea í dag.

West Ham hafði ekki unnið í sjö leikjum í röð þegar liðið mætti á Stamford Bridge.

Eina mark leiksins í dag skoraði Aaron Cresswell strax í upphafi seinni hálfeiks. Chelsea hafði átt nóg af færum en ekki náð að nýta sér þau.

West Ham fór með 1-0 sigur sem sá liðið hoppa upp í 13. sæti deildarinnar. Chelsea hefur nú tapað tveimur deildarleikjum í röð.

Crystal Palace náði sér líka í langþráðan sigur þegar liðið sótti Burnley heim.

Wilfried Zaha kom gestunum frá Lundúnum yfir í uppbótartíma fyrri hálfeiks og Jeffrey Schlupp skoraði annað mark Palace í seinni hálfleik.

Burnley náði ekki að svara og lauk leiknum með 2-0 sigri. Palace jafnaði þar með Burnley að stigum, en liðin eru í 8. og 10. sæti deildarinnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira