Arsenal kastaði frá sér sigrinum | Nýliðarnir upp í 6. sætið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Özil fékk tækifæri í byrjunarliði Arsenal í dag.
Özil fékk tækifæri í byrjunarliði Arsenal í dag. vísir/getty
Arsenal og Wolves skildu jöfn, 1-1, á Emirates í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Arsenal, sem hefur ekki unnið í þremur deildarleikjum í röð, er í 5. sæti með 17 stig. Wolves er í 11. sætinu með 13 stig.

Pierre-Emerick Aubameyang kom Skyttunum yfir á 21. mínútu með sínu fimmtugasta marki fyrir Arsenal.

Raúl Jiménez jafnaði fyrir Úlfana á 76. mínútu og þar við sat. Lokatölur 1-1.

Nýliðar Sheffield United komust upp í 6. sæti deildarinnar með 3-0 sigri á Burnley á Bramall Lane. Jóhann Berg Guðmundsson lék ekki með Burnley vegna meiðsla.

Sheffield United kláraði leikinn í fyrri hálfleik. John Lundstram skoraði þá tvö mörk og John Fleck eitt. Lys Mousset lagði öll þrjú mörkin upp.

Newcastle United vann góðan útisigur á West Ham United, 2-3. Með sigrinum komst Newcastle upp úr fallsæti.

Ciaran Clark, Federico Fernández og Jonjo Shelvey skoruðu mörk Newcastle í leiknum. Fabián Balbuena og Robert Snodgrass skoruðu mörk West Ham sem hefur ekki unnið í fjórum leikjum í röð.

Þá vann Brighton Norwich City, 2-0, á heimavelli. Leandro Trossard og Shane Duffy skoruðu mörk Mávanna í seinni hálfleik.

Brighton, sem hefur unnið tvo leiki í röð, er í 8. sæti deildarinnar. Norwich er í því nítjánda og næstneðsta.

Úrslit dagsins:

Bournemouth 1-0 Man. Utd

Aston Villa 1-2 Liverpool

Man. City 2-1 Southampton

Arsenal 1-1 Wolves

Sheffield United 3-0 Burnley

West Ham 2-3 Newcastle

Brighton 2-0 Norwich

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira