Walker hetja City gegn Southampton

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
City-menn fagna sigurmarki Walkers.
City-menn fagna sigurmarki Walkers. vísir/getty
Kyle Walker var hetja Manchester City þegar liðið vann 2-1 sigur á Southampton á Etihad í ensku úrvalsdeildinni.

Walker lagði fyrra mark City upp fyrir Sergio Agüero og skoraði það seinna á 87. mínútu.

City er í 2. sæti deildarinnar með 25 stig, sex stigum á eftir toppliði Liverpool. Liðin mætast um næstu helgi.

James Ward-Prowse kom Southampton yfir á 13. mínútu. Hann fylgdi þá eftir skoti Stuarts Armstrong sem Ederson varði.

City var miklu meira með boltann en skapaði sér fá færi. Liðið átti ekki skot á mark í fyrri hálfleik.

Á 70. mínútu jafnaði Sergio Agüero eftir fyrirgjöf Walker. Þetta var fyrsta skot City á markið í leiknum. Agüero hefur skorað níu mörk á tímabilinu en hann er markahæstur í ensku úrvalsdeildinni ásamt Jamie Vardy.

Þegar þrjár mínútur voru eftir skoraði Walker svo sigurmark City.

Southampton er í 18. sæti deildarinnar með átta stig. Liðið hefur ekki unnið í sex deildarleikjum í röð.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira