Manchester United upp í 7. sætið eftir auð­veldan sigur á Brig­hton

Anton Ingi Leifsson skrifar
Rashford og Martial fagna.
Rashford og Martial fagna. vísir/getty
Manchester United hoppaði upp um mörg sæti eftir að hafa unnið nokkuð þægilegan 3-1 sigur á Brighton á heimavelli.

Fyrsta markið kom eftir stundarfjórðung. Andreas Pereira skoraði þá en hann fékk boltann frá Anthony Martial. Boltinn fór af varnarmanni Brighton og Matt Fraser stóð varnarlaus í markinu.

Einungis þremur mínútum síðar tvöfölduðu heimamenn forystuna. Eftir darraðadans í vítateig gestanna setti  Davy Propper boltann í eigið net og staðan 2-0 í hálfleik.







Gestirnir minnkuðu muninn á 64. mínútu er Lewis Dunk minkaði muninn með laglegum skalla en sú staða stóð ekki lengi yfir.

Tveimur mínútum síðar kláraði Marus Rashford færið sitt ansi vel eftir að hafa fengið boltann frá Anthony Martial sem slapp einn í gegn en var kominn í þrönga stöðu.







United er því komið upp í sjöunda sæti deildarinnar með en Brighton er í 9. sætinu með fimmtán stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira