Tapaði gegn Ís­landi fyrr í mánuðinum en var hetjan á Anfi­eld í kvöld í stór­kost­legum leik

Anton Ingi Leifsson skrifar
Caoimhín Kelleher í eldlínunni í kvöld.
Caoimhín Kelleher í eldlínunni í kvöld. vísir/getty
Liverpool er komið áfram í átta liða úrslit enska deildarbikarsins eftir sigur á Arsenal í vítaspyrnukeppni eftir stórkostlegan leik á Anfield í kvöld.

Staðan eftir venjulegan leiktíma var 5-5 og réðust úrslitin í vítaspyrnukeppni þar sem ungur Íri var hetjan.

Veislan hófst strax á sjöundu mínútu er Shkodran Mustafi gerði sjálfsmark. Einungis þrettán mínútum síðar jafnaði Lucas Torreira hins vegar metin.

Arsenal var svo komið í 3-1 stundarfjórðungi síðar með tveimur mörkum frá Gabriel Martinelli en James Milner minnkaði muninn úr vítaspyrnu í 3-2 fyrir hlé.







Flestir héldu að Ainsley Maitland-Niles væri að gera út um leikinn er hann kom Arsenal í 4-2 á 54. mínútu en tvö mörk á fimm mínútna kafla frá Alex Oxlade-Chamberlain og Divock Origi jafnaði metin fyrir Liverpool.

Joe Willock skoraði svo stórkostlegt mark nítján mínútum fyrir leikslok en Liverpool kom til baka og jafnaði metin í uppbótartíma er belginn Origi skoraði annað mark sitt og fimmta mark Liverpool.







Tíu marka stórskostleg skemmtun en niðurstaðan 5-5 eftir venjulegan leiktíma. Því þurfti að útkljá úrslitin í vítaspyrnukeppni.

Fyrstu sex vítaspyrnurnar fóru í netið áður en Dani Ceballos lét hinn tvítuga markvörð Liverpool, Caoimhín Kelleher, verja frá sér.

Caoimhín Kelleher spilaði einmitt með írska U21-árs landsliðinu gegn því íslenska U21-ára landsliðinu fyrr í mánuðinum þar sem Ísland vann 1-0 sigur. Sveinn Aron Guðjohnsen skoraði markið.







Liverpool er því komið áfram í átta liða úrslit keppninnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira