Luka Jovic opnaði markareikinginn hjá Real gegn botnliðinu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Leikmenn Real fagna í  kvöld.
Leikmenn Real fagna í kvöld. vísir/getty
Real Madrid skoraði fimm mörk í kvöld á heimavelli er liðið fór létt með botnlið Leganes, 5-0, í spænsku úrvalsdeildinni.

Staðan var orðinn 2-0 eftir átta mínútur. Rodrygo skoraði á sjöundu mínútu en mínútu síðar tvöfaldaði Toni Kroos forystuna.

Á 24. mínútu skoraði Sergio Ramos úr vítaspyrnu en Karim Benzema skoraði svo fjórða markið úr vítaspyrnu á 69. mínútu.

Luka Jovic fékk svo langþráð tækifæri og skoraði fimmta markið í uppbótartímanum en þar við sat. Lokatölur 5-0.

Real er eftir sigurinn í 2. sæti deildarinnar með 21 stig, stigi á eftir toppliði Barcelona, en Leganes er á botninum.





Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira