Enski boltinn

David Luiz leið eins og hann væri Tarsan

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
David Luiz.
David Luiz. Getty/David Price
Arsenal maðurinn David Luiz er mikill ævintýramaður eins og sést oft inn á vellinum. Það sást líka þegar hann óð inn í miðjan afrískan frumskóg til að hitta górillur.

Ferðalag David Luiz til Afríkuríkisins Rúanda var til umfjöllunar í mannlega fótboltaþætti breska ríkisútvarpsins sem heitir Football Focus.

David Luiz lýsir þá tilfinningunni að vera meðal risastórra górilla í miðjum frumskóginum.

„Mér leið eins og ég væri Tarsan,“ sagði David Luiz.





David Luiz gaf líka dæmi um það hvernig hann reyndi að tala við górillunnar.

David Luiz gerði tveggja ára samning við Arsenal í haust en félagið keypti hann frá nágrönnum sínum í Chelsea.  David Luiz er búinn að vera stóran hluta síns ferils í London því hann lék í tvígang með Chelsea í nokkur ár, fyrst 2011–2014 og svo aftur 2016–2019.

Það má finna hluta úr viðtalinu við David Luiz með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×