Menning

Bein út­sending úr Hörpu: Sinfó spilar Brahms og Tsja­jkovskí

Atli Ísleifsson skrifar
Hljómsveitarstjóri er hin suður-kóreska Han-Na Chang.
Hljómsveitarstjóri er hin suður-kóreska Han-Na Chang. Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sýnt verður beint frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem hefjast klukkan 19:30 í Hörpu. Spiluð verða verk eftir Brahms og Tsjajkovskí, en hægt að fylgjast með tónleikunum í spilaranum að neðan.



Á efnisskrá tónleikana eru tvö verk. Annars vegar Píanókonsert nr. 2 eftir Brahms sem talið er eitt hans stærsta og kröfuharðasta verk.



„Einleikari í konsertinum er Stephen Hough en eftir síðustu tónleika hans á Íslandi sagði gagnrýnandi Morgunblaðsins að hann væri „einstakur píanóleikari með magnaðan áslátt, gríðarlega öflugan en líka unaðslega mjúkan“,“ segir í tilkynningu frá Sinfóníuhljómsveitinni.



Á tónleikunum leikur hljómsveitin einnig sjöttu sinfóníu Tsjajkovskí sem var síðasta verk rússneska tónskáldsins.



„Hljómsveitarstjóri er hin suður-kóreska Han-Na Chang sem var nemandi Rostropovitsj og lék einleik með mörgum helstu hljómsveitum heims þar til hún snéri sér að hljómsveitarstjórnun.“



Hægt er að fylgjast með tónleikunum að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×