Menning

Munaðar­leysingja­heimilið hlaut Gullna lundann á RIFF

Atli Ísleifsson skrifar
Munaðarleysingjaheimilið gerist á seinni hluta níunda áratugarins í afgönsku höfuðborginni Kabúl.
Munaðarleysingjaheimilið gerist á seinni hluta níunda áratugarins í afgönsku höfuðborginni Kabúl.
Munaðarleysingjaheimilið (e. The Orphanage) hlaut í kvöld Gullna lundann, aðalverðlaun kvikmyndahátíðarinnar RIFF. Verðlaunin voru afhent í Norræna húsinu fyrr í kvöld, en þetta er í sextánda sinn sem hátíðin er haldin.

Munaðarleysingjaheimilið er eftir leikstjórann Shahrbanoo Sadat og var Katja Adomeit framleiðandi myndarinnar. Katja var viðstödd afhendinguna og tók við verðlaununum. 

Myndin gerist á seinni hluta níunda áratugarins þar sem hinn fimmtán ára Qodrat býr á götum afgönsku höfuðborgarinnar Kabúl þar sem hann selur bíómiða á svörtum markaði. Er hann mikill aðdáandi Bollywood-mynda og lifir sig sterkt inn í uppáhalds atriðin úr myndunum. „Dag einn fer lögreglan með hann á sovéska munaðarleysingjahælið. En stjórnmálaástandið er að breytast í Kabúl. Qodrat og öll börnin vilja verja heimili sitt,“ segir í umfjöllun RIFF um myndina.

Minnst á Síðasta haustið

Það var Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir sem afhenti verðlaunin og sagði að þrátt fyrir lítil fjárráð tækist kvikmyndagerðarmönnunum að endurskapa litríkan heim Afganistan tíunda áratugarins. 

Í tilkynningu frá RIFF segir að sérstaklega hafi verið minnst á myndina Síðasta haustið eftir Yrsu Roca Fannberg. Þetta er í annað skiptið í sextán ára sögu RIFF sem mynd eftir Íslending er samþykkt í keppnina. Fékk hún sérstaka umfjöllun dómnefndar ásamt myndunum Corpus Christi og Maternal. 



Sigraði í flokknum Önnur framtíð

„Í flokknum Önnur framtíð vann myndin Ferðalangur að nóttu. Flokkurinn Önnur framtíð er metnaðarfullt framlag RIFF til Reykvíkinga þar sem reynt er að sýna áhorfendum það sem er helst á döfinni í heimildarmyndagerð. Erfiðum spurningum er kastað fram. Getum við haldið í það lífsmynstur sem við erum vön eða er kominn tími til að breyta til? Ræður plánetan við ágang mannsins? Komum við vel fram hvert við annað? Í flokknum Önnur framtíð er að finna áhrifamiklar kvikmyndir um mannréttinda- og umhverfismál. Bíó getur breytt heiminum. 

Dómnefndin minntist sérstaklega á myndina Guðirnir í Molenbeek sem heillaði dómnefndina en verðlaunin fóru til Ferðalangur að nóttu,“ segir í tilkynningunni.



Íslenskar stuttmyndir

Í flokknum Íslenskar stuttmyndir vann myndin Blaðberinn eftir Ninnu Pálmadóttur. Dómnefndin minntist einnig á stuttmyndina Gulrætur eftir Berg Árnason en myndin Blaðberinn eftir Ninnu vann. Í flokknum Gullna eggið vann myndin Muero Por Volver eftir Javier Marco.

Sagt var frá því í gær að franski kvikmyndaleikstjórinn Claire Denis, sem var heiðursgestur RIFF í ár, hafi tekið við heiðursverðlaun hátíðarinnar fyrir framúrskarandi listræna sýn, úr hendi Guðna Th. Jóhannessonar forseti á Bessastöðum í dag.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×