Menning

Ópera um alvöru tilfinningar

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar
Eyrún og Andri á sviði Þjóðleikhússins.
Eyrún og Andri á sviði Þjóðleikhússins. Fréttablaðið/Anton Brink
Hin sívinsæla ópera Brúðkaup Fígarós verður frumsýnd í Þjóðleikhúsinu eftir viku, laugardaginn 7. september. Meðal söngvara í óperunni eru Andri Björn Róbertsson sem fer með hlutverk Fígarós og Eyrún Unnarsdóttir sem er í hlutverki greifynjunnar. Bæði syngja í fyrsta sinn hjá Íslensku óperunni. Andri býr á Englandi og syngur víða um Evrópu og Eyrún býr í Vínarborg þar sem hún lauk nýlega söngnámi. Mozart er eitt af uppáhaldstónskáldum þeirra beggja.

„Að fá að debútera hér í hlutverki greifynjunnar er draumi líkast. Það er líka dásamlegt að fá að vera hér í Þjóðleikhúsinu með allri þeirri tækni sem hér er til staðar,“ segir Eyrún.

Andri segist vera í draumahlutverki sínu. „Ég átti mér þann draum að þegar ég kæmi loks heim að syngja fyrir Íslensku óperuna þá yrði það þetta hlutverk. Þessi ópera er eitt af meistarastykkjum Mozarts. Þar er mikið af aríum og samsöngsatriðum sem fólk þekkir og Mozart leiðir söguna meistaralega í gegnum músíkina. Hlutverkið mitt, Fígaró, er draumahlutverk og fyrir mína raddtýpu eitt af stóru óperuhlutverkunum.“

Styrkur kvenna

Óperan er byggð á gamanleikriti Beaumarchais. Hinn kvensami greifi Almaviva rennir hýru auga til Súsönnu, sem er þjónustustúlka eiginkonu hans. Daginn sem Súsanna á að giftast Fígaró hyggst greifinn nýta sér aldagamlan herrarétt til að sænga hjá henni. Greifafrúin og Súsanna taka höndum saman um að leika á greifann, og klækjabrögð þeirra hafa kostulegar afleiðingar.

„Ýmis málefni í þessari óperu er alveg hægt að heimfæra upp á daginn í dag. Þarna eru framhjáhöld og greifinn hefur greinilega sofið hjá 14 ára stúlku. Alls konar hlutir eru í gangi sem voru sjokkerandi á þeim tíma og verða meira sjokkerandi þegar maður áttar sig á því hve lengi þeir hafa viðgengist. Óperan fjallar um alvöru tilfinningar, ást og afbrýðisemi, reiði og særindi. Merkilegastur finnst mér styrkur kvenna í þessari óperu. Þarna eru ekki bara greifynjan og Súsanna heldur er Marcellina, móðir Fígarós, líka mjög sterkur karakter og Barb­arina sem er í aukahlutverki er punkturinn yfir i-ið þegar kemur að því að fletta ofan af greifanum,“ segir Andri.

Að syngja frá hjartanu

Andri og Eyrún segja æfingaferlið hafa verið bæði skemmtilegt og lærdómsríkt og hrósa samstarfsfólki sínu og leikstjóranum, John Ramst­ers, sem þau segja vera gríðarlega skipulagðan og orkumikinn.

Þau eru ungir listamenn og eru spurð hvort óperutónlist höfði nægilega til ungs fólks. „Áhorfendur í sölum óperuhúsa eru örugglega yfir meðalaldri en það er okkar verkefni að gera óperuna spennandi fyrir ungt fólk. Það gerist að mínu mati með því að vera ekta á sviði og syngja frá hjartanu,“ segir Eyrún og bætir við að enginn ætti að vera svikinn af Brúðkaupi Fígarós.

„Óperan var, og sumir segja að hún sé enn, elítulistform. Það var elítan sem kom í óperuna og hlustaði en það þarf ekki endilega að vera þannig. Í óperunni opinberast ekta tilfinningar eins og maður sér í bíómyndum eða á leiksviði. Síðan skemmir ekki fyrir þegar fólk þekkir tónlistina, eins og í þessari óperu. Mikið af tónlistinni þar hefur verið notað í auglýsingar. Ef fólk er að sjá sína fyrstu óperu þá er þetta einmitt kjörin ópera til að byrja á,“ segir Andri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×