Ekkert nýtt að Gylfi byrji tímabilið rólega í ensku úrvalsdeildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. ágúst 2019 11:00 Gylfi Þór Sigurðsson er enn að reyna að finna markaskóna sína frá því á síðustu leiktíð. Getty/Chris Brunskill
Ferill Gylfa Þórs Sigurðssonar í enska boltanum segir okkur að það sé enginn ástæða til að örvænta þótt að íslenski landsliðsmaðurinn hafi ekki fundið markaskóna sína í byrjun tímabilsins. Gylfi Þór Sigurðsson hefur ekki komið að einu einasta marki í fyrstu þremur umferðum ensku úrvalsdeildarinnar og hefur mátt þola talsverða gagnrýni hjá stuðningsmönnum Everton. Það eru bundnar miklar væntingar til Gylfa eftir að hann skoraði þrettán mörk sjálfur og kom alls að nítján mörkum Everton liðsins á síðustu leiktíð. Það er aftur á móti ekkert nýtt að Gylfi byrji rólega á tímabili í ensku úrvalsdeildinni. Þetta er áttunda tímabilið þar sem Gylfi er leikmaður í ensku úrvalsdeildinni í upphafi tímabils og það sjöunda þar sem hann er enn markalaus eftir þrjár umferðir. Tímabilið 2014 til 2015 sker sig algjörlega út því þá var hann með mark og stoðsendingu í fyrsta leik fyrir Swansea City í sigri á Manchester United á Old Trafford. Gylfi átti þátt í alls fimm mörkum í fyrstu þremur umferðunum haustið 2014 eða 83 prósent af mörkunum sem hann hefur búið til á ferlinum í 1. til 3. umferð ensku úrvalsdeildarinnar.Gylfi og fyrstu þrjár umferðirnir í ensku úrvalsdeildinni 2012/13 með Tottenham - 0 mörk og 0 stoðsendingar 2013/14 með Tottenham - 0 mörk og 0 stoðsendingar2014/15 með Swansea - 1 mark og 4 stoðsendingar 2015/16 með Swansea - 0 mörk og 0 stoðsendingar 2016/17 með Swansea - 0 mörk og 0 stoðsendingar 2017/18 með Swansea og Everton - 0 mörk og 0 stoðsendingar2018/19 með Everton - 0 mörk og 1 stoðsending 2019/20 með Everton - 0 mörk og 0 stoðsendingarFyrsta mark Gylfa í ensku úrvalsdeildinni á tímabilum sem hann hefur byrjað: 2012/13 með Tottenham - Í 27. umferð 2013/14 með Tottenham - Í 4. umferð2014/15 með Swansea - Í 1. umferð 2015/16 með Swansea - Í 7. umferð 2016/17 með Swansea - Í 4. umferð 2017/18 með Swansea og Everton - Í 13. umferð 2018/19 með Everton - Í 5. umferð 2019/20 með Everton - ???
Enski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Lúxemborg - Ísland 0-3 | Gott svar við döprum upphafsleik Fótbolti City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Enski boltinn Björk segir öllum þjálfurum upp Sport Uppgjörið: Ísland - Sviss 5-1| Draumurinn um EM lifir Fótbolti Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Handbolti Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Handbolti Átti aldrei að geta hlaupið aftur en vann Bakgarðinn Sport Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Íslenski boltinn Leikdagur í Lúx: Rodrigues er fífl Fótbolti Leik lokið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Handbolti Fleiri fréttir Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu Sjá meira