Enski boltinn

Skoraði tvö um helgina og nú bíður hans samningur upp á 100 þúsund pund á viku

Anton Ingi Leifsson skrifar
Tammy fagnar marki.
Tammy fagnar marki. vísir/getty
Chelsea er tilbúið að gefa sóknarmanninum Tammy Abraham nýjan samning og myndi hann því tvöfalda laun sín hja félaginu.

Abraham skoraði tvö mörk um helgina er Chelsea vann 3-2 sigur á Norwich í fyrsta sigurleik Frank Lampard sem stjóra Chelsea.

Chelsea er nú þegar byrjað að undirbúa nýtt samningstilboð fyrir Abraham. Hann er nú með 50 þúsnd pund á viku en nýr samningur myndi gefa honum 100 þúsund pund.







Abraham á þó enn þrjú ár eftir af samningi sínum við félagið en Chelsea vill tryggja sér starfskrafta hans til lengri tíma.

Hann skoraði 26 mörk á láni hjá Aston Villa á síðustu leiktíð og hjálpaði liðinu aftur í deild þeirra bestu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×