Enski boltinn

Lukaku æfði með Anderlecht á frídegi Manchester United

Anton Ingi Leifsson skrifar
Romelu Lukaku með Man. Utd á túr á undirbúningstímabilinu.
Romelu Lukaku með Man. Utd á túr á undirbúningstímabilinu. vísir/getty
Myndir fóru að leka um samfélagsmiðla af framherja Manchester United, Romelu Lukaku, í dag en á myndinni er Lukaku í æfingabol frá belgíska liðinu Anderlecht.

Margir vöktu upp furðu sína er myndin byrjaði að leka á Twitter en Belginn hefur verið reglulega orðaður við brottför frá Manchester United í sumar.

Juventus og Inter voru taldir líklegustu áfangastaðirnir en nú er líklegra að hann fari til Inter eftir að samningur United og Juventus gekk ekki í gegn.

Blaðamaðurinn Kristof Terruer birti myndina en hann greindi svo frá því að Lukaku hafi fengið leyfi til þess að æfa með Anderlecht á frídegi Manchester United. Athyglisvert.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×