Enski boltinn

Draumabyrjun Cocu á Englandi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Cocu var frábær leikmaður og byrjar þjálfaraferilinn á Englandi vel.
Cocu var frábær leikmaður og byrjar þjálfaraferilinn á Englandi vel. vísir/getty
Phillip Cocu byrjar þjálfaraferilinn á Englandi vel er hann stýrði Derby til 2-1 sigurs á Huddersfield á útivelli í ensku B-deildinni í kvöld.

Cocu tók við stjórnartaumunum hjá Derby í sumar eftir að Frank Lampard færði sig frá Derby yfir til Chelsea en Lampard stýrði Derby í eina leiktíð.

Tom Lawrence kom Derby yfir á 22. mínútu og þremur mínútum síðar tvöfaldaði vængmaðurinn forystuna fyrir gestina frá Derby.







Fjörinu í fyrri hálfleik var ekki lokið því á 30. mínútu fengu heimamenn í Huddersfield vítaspyrnu. Karlan Grant steig á punktinn og skoraði en nær komust Huddersfield ekki og lokatölur 2-1.

Leikurinn var liður í fyrstu umferð ensku B-deildarinnar og Derby er því komið með þrjú stig en Huddersfield sem lék í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð, án stiga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×