Enski boltinn

Philippe Coutinho hafnar því að fara á láni til Tottenham

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Philippe Coutinho.
Philippe Coutinho. Getty/John Powell
Philippe Coutinho vill ekki fara til Tottenham og það er því mjög ólíklegt að hann spili í ensku úrvalsdeildinni á komandi tímabili.

Sky Sports segir frá því að Coutinho taki það ekki á mál að spila á lánssamning hjá Tottenham í vetur.





Félagsskiptaglugginn í Englandi lokar á morgun fimmtudag en hann er opinn lengur annars staðar í Evrópu.

Bæði Coutinho sjálfur sem og Barcelona sjálfur vilja slíta tengslin og ganga frá sölu á Brasilíumanninum en það ekki líklegt að eitthvert lið í ensku úrvalsdeildinni sé tilbúið að borga þær 80 milljónir punda sem Barcelona vill fá fyrir hann.

Philippe Coutinho lék með Liverpool í ensku úrvalsdeildinni við mjög góðan orðstýr en Liverpool er ekki að fara að taka hann á þessu tímapunkti.

Það er því áfram mikil óvissa um það með hvaða liði Philippe Coutinho spilar tímabilið 2019-20.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×