Enski boltinn

David Luiz vill fara til Arsenal

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
David Luiz hefur unnið fjölda titla með Chelsea.
David Luiz hefur unnið fjölda titla með Chelsea. vísir/getty
David Luiz, varnarmaður Chelsea, vill fara til Arsenal samkvæmt heimildum Sky Sports. Hann æfði ekki með Chelsea-liðinu í dag.



Arsenal er í leit að miðverði í staðinn fyrir Laurent Koscielny sem er farinn til Bordeaux. Arsenal hefur þó ekki enn gert tilboð í Luiz.

Líkurnar á því Chelsea selji Luiz til Arsenal verða þó að teljast litlar vegna félagaskiptabannsins sem Chelsea er í.

Luiz kom óvart aftur til Chelsea á lokadegi félagaskiptagluggans fyrir þremur árum. Hann lék með Chelsea á árunum 2011-14, áður en hann var seldur til Paris Saint-Germain.

Brassinn hefur einu sinni orðið Englandsmeistari og tvisvar sinnum bikarmeistari með Chelsea. Þá hefur hann unnið Meistaradeild Evrópu einu sinni og Evrópudeildina tvisvar með félaginu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×