Lífið

Vorspá Siggu Kling – Krabbinn: Fyrirgefðu óvinum þínum

Sigga Kling skrifar
Elsku Krabbinn minn, þetta verður svo ljúft og ljómandi skemmtilegt sumar sem þú ert að fara inn í, það verður ótrúlega gaman og mundu það að hamingjan og gaman búa saman. Það er eins og það sé framlenging á töfrasprota á puttunum á þér, þú þarft bara rétt að lyfta höndinni og þá geturðu breytt hinu fábrotna í fegurð.

Orðin sem þú segir eru aflið og hugsanir þínar eru máttur, fyrirgefðu óvinum þínum, það er ekkert sem pirrar þá meira og ef þeir eru að baktala þig eitthvað þá er allt umtal betra en ekkert og það er bannað að dæma, svo þér alveg slétt sama hvort einhver sé að drepast úr öfund yfir því sem þú ert að gera eða þeirri perónu sem þú ert.

Þú ert að fara inn í mjög litríkt sumar, stjörnukortið þitt gefur þér miklar breytingar sérstaklega tengt ástinni, heimili og hugmyndum. Það er ótrúlega mikill kraftur í ástartengingum þetta sumarið, eins og þú skynjir það sé eldur inni í þér og þessi orka er svo mögnuð að þú getur notað hana í allskonar, til að skreyta, byggja og bæta líf þitt.

Þetta er hamingjusamur tími sem þú ert að hoppa inn í, taktu nógu mikið af myndum og farðu yfir gamlar myndir, þá sérðu svo sannarlega að lífið er að leggja þér lið.

Það er að koma miklu meiri næmni í lyktarskyn þitt, þú átt að nota vanillu eða lavender, lífrænar og ekta olíur í kringum þig og þú finnur að jákvæðni þín og kærleikur eflast.

Þú skilur eftir sterk spor í lífi annarra og býrð til miklar og góðar minningar, þú skalt umvefja ástina, lífið og fegurðina því þetta sumar er þitt. Ekki taka mikla peningalega áhættu, þú ert engu að tapa, það verður nóg af peningum í kringum þig þegar þú þarft á að halda svo skemmtu þér núna, rífðu af þér öll bönd og dansaðu inn í sumarið!

Knús og kossar, Sigga Kling.



Krabbi 22. júní - 22. júlí

Auðunn Blöndal, 8. júlí

Ólafur Stefánsson, handboltakappi og heimspekingur, 3. júlí

Edda Sif, 20. júlí

Sindri Sindrason, 19. júlí

Ásdís Halla Bragadóttir, 6. júlí

Guðni Th. forseti Íslands, 26. júní

Unnsteinn Manuel Stefánsson, tónlistarmaður, 2. júlí

Ariana Grande, tónlistarkona, 26. júní

Meryl Streep, leikkona, 22. júní






Fleiri fréttir

Sjá meira


×