Messan: „Stuðningsmenn United vilja frekar sjá City vinna en Liverpool“ Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 15. apríl 2019 15:00 Ólafur Ingi Skúlason og Jóhannes Karl Guðjónsson s2 sport
Liverpool og Manchester City eiga í harðri baráttu um Englandsmeistaratitilinn. Leikurinn sem gæti haft úrslitaáhrif í þeirri baráttu er viðureign Manchester City og Manchester United. Liverpool á fjóra leiki eftir en Manchester City fimm. Liverpool er með tveggja stiga forskot á ríkjandi meistara City í dag. Liverpool á eftir að mæta Cardiff, Huddersfield, Newcastle og Wolves. Allt eru þetta leikir sem á pappírnum ættu að vera nokkuð þægilegir sigrar, nema kannski leikurinn við Úlfana, þeir hafa staðið í toppliðunum í vetur. City á hins vegar eftir Tottenham, Manchester United, Burnley, Leicester og Brighton. Næstu tveir leikir hjá City eru því gegn topp sex liðum í deildinni. „Heilt yfir þá er þetta miklu erfiðara prógramm, en þessir tveir leikir munu skera úr um þetta fyrir City,“ sagði Ólafur Ingi Skúlason í Messunni á Stöð 2 Sport í gærkvöld. „Ég ætla að óska eftir því að Manchester United hjálpi okkur Liverpoolmönnum í þessari titilbaráttu,“ sagði Jóhannes Karl Guðjónsson. „Eins skrýtið og það hljómar þá held ég samt sem áður að stuðningsmenn Manchester United vilji frekar að City vinni deildina heldur en Liverpool.“ Manchester United og Liverpool hafa verið erkifjendur í fjöldamörg ár og háð marga baráttuna. Þrátt fyrir að Manchester City og Manchester United séu nágrannar þá hefur rígurinn ekki verið eins mikill þar á milli í sögunni, það er aðeins á undanförnum árum sem bláa liðið í Manchester hefur stigið upp og orðið að stórliði. „Rígurinn er eldri og hefur alltaf verið stærri á milli Liverpool og United. City er samt búið að yfirtaka Manchesterborg og ég trúi því ekki að stuðningsmenn United geti ekki verið aðeins stærri en það að vilja að City sé alltaf að taka sigurinn og þeir í baráttunni um Meistaradeildarsæti.“ „Ég ætla bara að þakka United fyrir fyrirfram að hjálpa okkur að vinna titilinn,“ sagði Jóhannes Karl. Alla umræðuna má sjá hér að neðan.Klippa: Messan: Stuðningsmenn United vilja að City vinni deildina
Enski boltinn Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Enski boltinn „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Körfubolti Óvæntasta stjarna HM fann sér nýtt félag Fótbolti Fleiri fréttir Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Sjá meira