Innlent

Búr­hval rak á land í Súganda­firði

Atli Ísleifsson skrifar
Robert Schmidt segir að hvalurinn hafi verið í kringum tólf metra langur.
Robert Schmidt segir að hvalurinn hafi verið í kringum tólf metra langur. Robert Schmidt
Stóran búrhvalstarf rak á land við í Súgandafirði á Vestfjörðum fyrr í dag. Robert Schmidt, leiðsögumaður á Suðureyri, birti myndir af hræinu á Facebook-síðu sinni og segir að það hafi verið bændur í Staðardal, í utanverðum firðinum sunnanmegin, sem hafi fyrst séð hvalinn, skömmu áður en tók að flæða að.

Robert segir í samtali við Vísi að hann hafi mætt á staðinn um klukkustund eftir að bændurnir í Staðardal urðu varir við hvalinn. Hann segir mikinn óþef leggja frá hræinu.

„Fyrir skömmu veltist búrhvalurinn í fjörunni fyrir neðan grindarhliðið og stefndi síðan út með brjótnum og líklega rekur hann inn fjörð. Stórstreymt er og búist við miklum SV hvelli í kvöld og nótt. Vonandi stendur brjóturinn af sér storminn en sérstaklega á einum stað, er komin stór sprunga þvert á hann,“ segir í Facebook-færslu Roberts.

Hann segir að hvalurinn hafi verið í kringum tólf metra langur. Sjá má myndir Roberts að neðan.



Loftmyndir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×