Ævintýralegt jafntefli hjá Lars gegn Svíum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Rosalegur leikur í Noregi í kvöld.
Rosalegur leikur í Noregi í kvöld. vísir/getty
Lars Lagerback og lærisveinar hans í norska landsliðinu gerðu rosalegt 3-3 jafntefli við Svíþjóð í undankeppni EM 2020 er leikið var í Noregi í kvöld.

Bjoern Maars Johnsen kom Noregi yfir á 41. mínútu og þannig stóðu leikar í hálfleik. Það leit vel út fyrir Noreg er Joshua King kom þeim í 2-0 eftir klukkutíma leik.

Svíar fengu vítaspyrnu á 70. mínútu sem Andreas Granqvist klúðraði en Viktor Claesson fylgdi á eftir og minnkaði muninn í 2-1.

Það var svo fjórum mínútum fyrir leikslok sem Robin Quasion jafnaði metin. Skot hans fór af Haavard Nordtveit og þaðan í netið.

Dramatíkinni var ekki lokið því í uppbótartíma skoruðu Svíar, að því virtist, sigurmarkið. Viktor Claesson komst upp að endarmörkum, þrumaði boltanum fyrir þar sem boltinn fór í Quasion og í netið.

Norðmennirnir voru ekki hættir og mark Svía varð ekki að sigurmarki. Norðmenn fengu hornspyrnu á sjöttu mínútu uppbótartíma og þar jöfnuðu þeir metin. Ola Kamara stangaði boltann í netið og lokatölur ævintýralegt 3-3 jafntefli.

Noregur er því með eitt stig eftir fyrstu tvo leikina í riðlinum en Svíar eru með fjögur stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira