Pochettino segir Barcelona einu skrefi ofar en United Anton Ingi Leifsson skrifar 18. mars 2019 22:45 Pochettino eftir sigurinn á Dortmund í 16-liða úrslitunum. vísir/getty
Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, segir að Barcelona sé líklegasta liðið til þess að vinna Meistaradeildina af þeim liðum sem eftir eru. Tottenham var ekki við keppni í enska bikarnum um helgina og skellti liðið því sér til Spánar í æfingarferð, nánar tiltekið til Barcelona, þar sem rætt var við stjórann, Pochettino. „Ef það er eitt lið sem er líklegt til þess að vinna Meistaradeildina þá er það Barcelona. Ernesto Valverde er að gera frábært starf. Þeir eru með ótrúlega leikmenn og svo Lionel Messi,“ sagði Pochettino. „Síðan ertu með lið eins og Manchester City og Juventus sem munu alltaf eiga möguleika á að vinna því liðið þeirra er byggt þannig upp. Það er svo alltaf pláss fyrir óvænt úrslit og vonandi getur Tottenham verið þetta óvænta.“ Börsungar drógust gegn Manchester United í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar og þrátt fyrir að Pochettino segi að United sé með hörkulið segir hann jafnframt að Börsungar séu skrefi framar. „Ég held að Manchester United liðið sem hefur verið byggt upp síðustu ár sé líklegt til þess að vinna stóra hluti en að vinna stórar keppnir eins og Meistaradeildina og ensku úrvalsdeildina ræðst á litlum hlutum.“ „Auðvitað eru þeir með leikmenn sem geta gert Barcelona erfitt fyrir en ég held að Barcelona sé einu skrefi fyrir ofan Manchester United,“ sagði Argentínumaðurinn að lokum.
Fótbolti Mest lesið Margir orðnir þreyttir á Norðmönnum á HM og halda með Brasilíu Fótbolti Skítabrögð Paragvæja stöðvuðu ekki Frakka Fótbolti Birti margar myndir af sér að „bóka“ Bellingham Fótbolti Skoraði eitt fallegasta mark HM og leitaði uppi kærustuna í stúkunni Fótbolti Dramatík í kringum enska landsliðið: Eldingar, hótelhávaði og njósnir Fótbolti Afríska innrásin á HM stöðvuð í fæðingu Fótbolti Meira en hundrað lögreglumenn fyrir utan HM-hótel Englands Fótbolti Solbakken neitar að hafa sýnt Ancelotti vanvirðingu Fótbolti Ancelotti svarar fyrir sig: Sir Alex Ferguson sá eini sem er hæfari en ég Fótbolti „Gleður mitt Blikahjarta“ Fótbolti Fleiri fréttir Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Sjá meira