Markaveisla á Anfield Anton Ingi Leifsson skrifar 27. febrúar 2019 21:45 Mo Salah, framherji Liverpool og Mane fagna. vísir/getty Liverpool komst aftur á sigurbarut er liðið rúllaði yfir Watford á heimavelli í kvöld en þeir rauðklæddu gerðu fimm mörk í kvöld. Það tók Liverpool ekki nema níu mínútur að komast yfir en fyrsta markið skoraði Sadio Mane. Ellefu mínútum síðar var svo Mane búinn að koma Liverpool í 2-0 en Trent Alexander-Arnold lagði upp fyrstu tvö mörkin. Liverpool sótti og sótti í leiknum en þriðja markið kom ekki fyrr en á 66. mínútu er Divock Origi, sem fékk tækifæri í fremstu víglínu Liverpool, kom Liverpool í 3-0.FULL-TIME Liverpool 5-0 Watford The Reds retain top spot with a five-star performance featuring goals from Mane (2), Origi and Van Dijk (2)#LIVWATpic.twitter.com/VszTrWZB4s — Premier League (@premierleague) February 27, 2019 Virgil Van Dijk skoraði fjórða markið ellefu mínútum fyrir leikslok og þremur mínútum síðar var Hollendingurinn aftur á ferðinni er hann skoraði annað mark sitt og fimmta mark Liverpool. Liverpool er því áfram á toppi ensku úrvalsdeildarinnar og áfram með eins stigs forskot á Manchester City sem vann einnig í kvöld. Watford er í áttunda sætinu. Enski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Györ 1-0 | Niko Hansen sá til þess að Víkingur fer með forystu til Ungverjalands Fótbolti
Uppgjörið: Víkingur - Györ 1-0 | Niko Hansen sá til þess að Víkingur fer með forystu til Ungverjalands Fótbolti