Jürgen Klopp vill vera hjá Liverpool í minnsta kosti þrjú ár í viðbót Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. apríl 2019 10:00 Jürgen Klopp fagnar hér einum af mörgum dramatískum sigrum Liverpool liðsins í vetur. Getty/Clive Brunskill
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, er ekki á förum frá félaginu á næstunni ef marka má nýtt viðtal við hann í heimalandinu Þýskalandi. Eftir frábæra frammistöðu sína með Liverpool liðið þá hefur Klopp verið orðaður við lið eins og Bayern München. Hann er ekki að fara heim til Þýskalands nærri því strax. Í viðtali við þýska blaðið „Die Welt am Sonntag“ þá segist Jürgen Klopp vera fullkomlega sáttur á Anfield.Jurgen Klopp has reportedly said he wants to stay at Liverpool for 'at least another three years'. Gossip https://t.co/Ir0eLqumj5#LFCpic.twitter.com/zezA7d80iF — BBC Sport (@BBCSport) April 8, 2019Jürgen Klopp er með samning til þriggja ára í viðbót. „Ég er með samning við Liverpool til 2022. Það er enginn hér að hugsa um að enda samstarfið, hvorki þeir hjá félaginu eða ég,“ sagði Jürgen Klopp. Klopp hefur enn ekki unnið titil með Liverpool en liðið er nú á toppnum í ensku úrvalsdeildinni og komið í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar. Stuðningsmenn félagsins dreymir um langþráðan titil og þá sérstaklega að vinna ensku deildina í fyrsta sinn í 29 ár. Fyrirsögnin á viðtali „Die Welt am Sonntag“ við Klopp vísar að vissu leyti til þess en hún er „Mitt starf er ekki búið hér“ eða á þýskunni „Ich bin hier nicht im Ansatz fertig“ eins og sjá má hér fyrir neðan.“I’m not done here.” Jürgen Klopp interview in Die Welt am Sonntag in Germany today. Reiterates that he’s happy in Liverpool, particularly to continue working with this current group of players. pic.twitter.com/V4HGKpMhPF — Archie Rhind-Tutt (@archiert1) April 7, 2019Liverpool vann 3-1 endurkomusigur á Southampton á föstudagskvöldið og náði aftur toppsætinu af Manchester City sem á þó leik til góða. City var upptekið um helgina að tryggja sér sæti í bikarúrslitaleiknum. Liverpool liðið endaði í áttunda sæti á fyrsta tímabili Jürgen Klopp en tók þá við liðinu af Brendan Rodgers í október. Undanfarin tvö tímabil hefur liðið síðan endaði í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Liðið hefur þó tekið stórt skref á hverju tímabili undir stjórn Klopp og komst meðal annars í úrslitaleik Meistaradeildarinnar fyrir ári síðan.Jürgen Klopp: Bayern? "Ich bin hier nicht im Ansatz fertig" https://t.co/7pGdZiuQAzpic.twitter.com/byiGu0TYIi — WELT (@welt) April 7, 2019Fyrsti titilinn undir stjórn Jürgen Klopp lætur aftur á móti bíða eftir sér en Liverpool liðið hefur spilað þrjá úrslitaleiki undir hans stjórn og tapað þeim öllum.
Enski boltinn Mest lesið Risa sigur fyrir Leeds United Enski boltinn Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Enski boltinn Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö Íslenski boltinn Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Fótbolti Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Enski boltinn Brunaði niður brekkuna viku eftir að hafa slitið krossband Sport Með móral eftir djammið og sendu þýfið á ÓL Sport „Spennið núna beltin áhorfendur góðir, þetta er svakalegt“ Sport Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Risa sigur fyrir Leeds United Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Segir fótboltasérfræðinga bera ábyrgð Úlfar í sauðagæru? „Myndi segja að þetta sé framsækin nálgun“ Sakar Arsenal um virðingarleysi Leicester missir sex stig og er í mikilli hættu á að falla annað árið í röð Arne Slot: Jérémy Jacquet er gríðarlegt efni Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sláin inn í þægilegum sigri Sunderland Mateta fer ekki til Mílanó Kvennalið Arsenal vann sér inn meira en 280 milljónir króna Szoboszlai segir að framtíð hans hjá Liverpool sé „ekki í hans höndum“ Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Sjá meira