Innlent

„Siðrof er ekki siðleysi“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands.
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands. Vísir/Vilhelm
Orð Agnesar M. Sigurðardóttur, biskup Íslands um að minnkandi traust til Þjóðkirkjunnar megi rekja til siðrofs í samfélaginu, vakti hörð viðbrögð. Biskup var spurð út í þetta orðaval sitt í Kastljósi í kvöld.

„Siðrof er ekki siðleysi. Siðrof er rof við siðinn sem við höfum lifað eftir um aldir hér á Íslandi, sem er mótuð af kristnum gildum og kristinni trú. Ef að við fræðum ekki börn framtíðarinnar um það sem við byggjum okkar menningu, hefðir og siði á, þá tel ég það vera siðrof, ekki siðleysi“ útskýrði Agnes í Kastljósi.  

Eins og fjallað var um hér á Vísi í dag fóru af stað fjörugar umræður á samfélagsmiðlum um ummæli biskups frá því í gær og margir veltu því fyrir sér hvort hún teldi þjóðina siðlausa.

„Það hefur orðið siðrof held ég. Fólk áttar sig ekki á því hvaðan hlutirnir koma sem við viljum gjarnan lifa eftir og starfa eftir. Það náttúrulega segir sig sjálft að ef að börnin læra ekki heima hjá sér til dæmis biblíusögurnar eða í skólanum á verður framtíðin þannig að þau vita ekki að þetta er til,“ sagði Agnes. Hún segir nú að með þessu hafi hún ekki átt við siðleysi.

„Auðvitað er það þannig að börnin eru framtíðin og ég er alls ekki að segja að þau séu siðlaus. Þvert á móti þá ber ég mikla umhyggju fyrir börnum landsins og vil að þau fái að læra um þann grunn sem við stöndum á.“

Karl Sigurbjörnsson. Fréttablaðið/Stefán

Fús til að biðjast afsökunar

Aðspurð hvort samkynhneigðir ættu rétt á afsökunarbeiðni frá kirkjunni vegna orða Karls Sigurbjörnssonar, þáverandi biskups, frá árinu 2006 um að hjónabandið ætti það inni að því væri ekki kastað „á sorphauginn án þess að hugsa okkar gang.“ Var þetta í tengslum við frumvarp sem veitti prestum þjóðkirkjunnar heimild til að gefa saman samkynja pör. Ummælin voru sýnd í þættinum Svona Fólk á RÚV.

„Sko hérna auðvitað er það þannig að allir menn eru skapaðir af guði og elskaðir af guði og við eigum að líta á alla menn jafnt. Það er náttúrulega þannig. Ég get alveg hérna bara beðið fólk afsökunar á því að kirkjan hafi komið svona fram og sært fólk og valdið þeim bæði sársauka og vandræðum og erfiðleikum. Ég er fús til þess að biðjast afsökunar á því,“ svaraði Agnes.


Tengdar fréttir

Orð biskups um siðrof vekja undrun og furðu

Orð Agnesar M. Sigurðardóttur, biskup Íslands, um að minna traust til Þjóðkirkjunnar megi rekja til siðroðs í samfélaginu sem orðið hafi eftir að kristinfræði var ekki lengur kennd sem sérstakt fag í grunnskólum landsins, hafa vakið bæði undrun og furðu á meðal landsmanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×