Solskjær: Dómarinn verður ósáttur þegar hann sér þetta Anton Ingi Leifsson skrifar 10. mars 2019 19:09 Solskjær á bekknum í dag. vísir/getty
Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, tapaði sínum fyrsta leik sem stjóri United gegn ensku liði er United tapaði 2-0 fyrir Arsenal fyrr í dag. Solskjær segir að það hafi líklega setið aðeins í leikmönnum liðsins Meistaradeildarleikurinn gegn PSG fyrr í vikunni. „Við byrjuðum rólega og kannski var það bakslag frá leiknum á miðvikudagskvöldið en við sköpuðum færi og þegar fyrsta markið kom þá varð þetta annar leikur,“ sagði Norðmaðurinn við Sky Sports í leikslok. „Við sköpuðum mun fleiri færi í dag en þegar við slógum þá út úr enska bikarnum. Stundum gerist þetta; við skutum tvisvar í tréverkið og áttum fimm stóra möguleika á að skora.“ Arsenal fékk vítaspyrnu til þess að komast í 2-0 og Solskjær eyddi fáum orðum í það: „Dómarinn verður ósáttur þegar hann sér þetta því mér finnst þetta ekki vera víti.“ David de Gea gerði sig seka um mistök í fyrra marki Arsenal en þrumuskot Xhaka af tuttugu metra færi endaði í netinu. Margir hefðu viljað sjá Spánverjann gera betur en Solskjær segir að boltinn hafi ferðast undarlega. „David er alltaf ósáttur þegar hann fær á sig mörk. Boltinn hreyfðist skringilega og þetta er eins og David fer til vinstri og svo breytir boltinn um átt. Á fyrstu fimmtán til tuttugu mínútunum vorum við hægir og settum þá ekki undir pressu.“
Fótbolti Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Formúla 1 Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Fótbolti Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Körfubolti Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Handbolti Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Fótbolti Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Fótbolti Fleiri fréttir Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Sjá meira