Mané og Salah jöfnuðu afrek Rush og Dalglish Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. mars 2019 12:00 Sadio Mané og Mohamed Salah fagna en til hægri eru þeir Ian Rush og Kenny Dalglish. Samsett/Getty
Sadio Mané og Mohamed Salah eru markahæstu leikmenn Liverpool á leiktíðinni og svo öflugir saman að það þarf að fara allt aftur til Ian Rush og Kenny Dalglish til að finna samskonar tvíeyki í framlínu Liverpool. Sadio Mané og Mohamed Salah eru nú báðir komnir með tuttugu mörk á tímabilinu og það eru liðin 36 ár síðan að Liverpool-tvíeyki náði því tvö tímabil í röð.Sadio Mane and @MoSalah have equalled a goalscoring feat last achieved for #LFC by @Ian_Rush9 and Kenny Dalglish. https://t.co/dbiL3Gfdjf — Liverpool FC (@LFC) March 20, 2019 Á síðasta tímabili skoraði Mohamed Salah 44 mörk og Sadio Mané var með 20 mörk. Nú eru þeir báðir komnir með 20 mörk þökk sé ellefu mörkum í síðustu ellefu leikjum hjá Mané. Síðasta sóknartvíeyki Liverpool þar sem báðir fóru yfir 20 mörk tvö tímabil í röð var skipað Liverpool goðsögnunum Ian Rush og Kenny Dalglish. Þeir náðu því tímabilin 1981-82 og 1982-83. Ian Rush skoraði 30 og 31 mark þessu tvö tímabil en Dalglish var með 22 og 20 mörk. Bob Paisley var þá stjóri Liverpool og liðið vann ensku deildina og enska deildabikarinn bæði tímabilin. Það er síðan bara eitt framlínupar í sögu Liverpool þar sem báðir hafa skorað yfir 20 mörk á þremur tímabilum í röð. Það voru þeir Roger Hunt og Ian St John sem náðu því undir stjórn Bill Shankly tímabilin 1961-62, 1962-63 og 1963-64.
Enski boltinn Mest lesið „Getum ekki alltaf spilað á sama liðinu“ Handbolti Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Kristín Evrópumeistari og bætti tvö heimsmet Sport Magnaður sigur Elísu og brautarmet á Ítalíu Sport „Hellings tækifæri fyrir unga menn úti á landi“ Körfubolti Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Íslenski boltinn Var að vinna maraþon en var þá meinaður aðgangur að markinu Sport Uppgjörið: Ísland - Svíþjóð 27-30 | Gamlir draugar létu á sér kræla Handbolti Þórsarar stofna söfnunarreikning vegna sektar KKÍ Körfubolti Sjáðu sjóðheitan Kristian halda áfram að skora Fótbolti Fleiri fréttir Löng bið Leeds eftir marki lengist Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Fulham blandar sér í Meistaradeildarbaráttuna Bras á gestunum og Brighton í Meistaradeildarbaráttu Ekitiké fór grátandi af velli Sjáðu mörkin og vítadómana sem United-menn eru æfir yfir Hér eftir verður það refsivert að smygla sér inn á leiki „Annaðhvort eru bæði brotin víti eða hvorugt“ Maguire fékk rautt og United missti tvívegis niður forystuna Arteta gaf ekkert upp um þátttöku Ödegaard í úrslitaleiknum Vandræðalegi markvörður Tottenham gæti átt strax endurkomu Yfirlýsing Liverpool: „Leikmenn okkar eru manneskjur en ekki skotmörk“ Býst við því að Salah jafni sig fljótt „Höfum gleymt ástæðunni fyrir því að VAR var tekið upp“ Guardiola: Liverpool-liðið hans Klopp er erfiðasta áskorunin en ekki Real „Þýðir mikið fyrir mig og leikmennina að fá ást frá stuðningsmönnunum“ Andy Carroll nýr stjóri Dagenham & Redbridge Mainoo, Maguire og Shaw eigi allir að fara á HM Segir að Anfield sé orðinn einn auðveldasti staðurinn til að spila á Vill verða varamaður Kane á HM í sumar Isak sást á æfingu Liverpool Pabbinn urðaði yfir þjálfara sem sá að sér Stórstjarnan biðlar til stuðningsmanna Liverpool „Fyrirgefðu mamma“ Úlfarnir unnu upp tveggja marka forskot og voru hársbreidd frá sigri „Allir vildu að hann yrði áfram hjá Man. United“ Fær ekki að spila hjá Liverpool en er kominn í norðurírska landsliðið Vill að forsetar eins og Trump verði sendir sjálfir á víglínuna Guardiola aflýsti æfingu liðsins Dómarinn festist á leikmannafundi Chelsea Sjá meira