Undirbjó olnbogaskotið í andlitið á Hemma Hreiðars gaumgæfilega á bekknum Tómas Þór Þórðarson skrifar 8. mars 2019 10:30 Hermann Hreiðarsson steinliggur eftir olnbogaskotið frá Duncan Ferguson (lengst til hægri). vísir/getty
Skotinn Duncan Ferguson, fyrrverandi leikmaður Everton í ensku úrvalsdeildinni, var ekki alltaf sá eðlilegasti inn á vellinum en hann átti það til að brjóta illa á mönnum; gefa þeim olnbogaskot nú eða bara að kýla þá í magann. Mjög áhugavert í ljósi þess að hann var framherji. Hermann Hreiðarsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði Íslands, lenti einu sinni illa í Ferguson en það var í leik Charlton og Everton undir lok árs 2004. Ferguson fékk þá rautt spjald fyrir að gefa Hermanni glórulaust og stórhættulegt olnbogaskot í andlitið. „Þetta var rautt spjald. Það þarf ekkert að ræða það frekar,“ sagði vel pirraður David Moyes, þáverandi knattspyrnustjóri Everton, eftir leik en Hermann hafði mikil áhrif á leikinn. Hermann „fiskaði“ rauða spjaldið á Ferguson þrátt fyrir að hann gerði ekkert nema að fá olnbogann í andlitið en íslenski landsliðsmaðurinn lagði svo upp fyrra markið og skoraði það síðara í 2-0 sigri eftir að Skotinn var rekinn út af.Hermann Hreiðarsson var ekki barnanna bestur en hann átti þetta ekki skilið.vísir/gettyUndirbúið James McFadden, samlandi Fergusons og samherji á þessum tíma hjá Everton, segir söguna af þessu olnbogaskoti í nýjasta þætti Premier League World sem frumsýndur var á Stöð 2 Sport HD í gærkvöldi en þar kemur fram að þetta var vel undirbúið og eins viljandi og ofbeldisverkin verða. McFadden og Ferguson sátu saman á varamannabekknum á meðan að leik stóð og fóru yfir málin en Ferguson var lítill aðdáandi Hermanns sem honum fannst alltaf vera í því að reyna að meiða aðra leikmenn. Nú, svona svipað og hann sjálfur. „Við vorum að spila gegn Hermanni Hreiðarssyni hjá Carlton þegar að hann sagði við mig: „Sjáðu hann [Hermann]. Hann þykist vera svakalega harður og er alltaf að sparka í fólk,“,“ sagði Ferguson við McFadden á varamannabekknum. „Hann talaði mikið um þetta á meðan að leik stóð en svo fór hann inn á og lét vaða og fékk rautt spjald. Það var einhver umræða um þetta eftir leik en svona var stóri Dunc bara. Hann var frábær samherji sem að passaði upp á samherja sína,“ segir James McFadden.Klippa: Premier League World - James McFadden um Duncan Ferguson
Enski boltinn Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Formúla 1 Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Handbolti Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Körfubolti Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Fótbolti Fleiri fréttir Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Sjá meira