Carlos Tevez: Þetta er vandræðalegt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. desember 2018 23:15 Carlos Tevez. Vísir/Getty
Carlos Tevez, framherji argentínska félagsins Boca Juniors, þekkir það vel að spila stóra leiki á stærstu fótboltaleikvöngum Evrópu en honum finnst það mjög skrýtið að úrslitaleikur Copa Libertadores, Suðurameríkukeppni félagsliða, þurfi að fara fram í Evrópu. Seinni úrslitaleikur Boca Juniors og River Plate fer fram á sunnudaginn á Santiago Bernabéu, heimavelli Evrópumeistara Real Madrid. Ástæðan er árás öfgastuðningsmanna River Plate á liðsrútu Boca Juniors. Bæði liðin koma frá Buenos Aires í Argentínu og er þetta í fyrsta sinn sem þessi heimsfrægu félög mætast í úrslitaleik Copa Libertadores sem er samskonar keppni og Meistaradeildin í Evrópu.Carlos Tevez claims playing the biggest fixture in the history of Argentine football at the Santiago Bernabéu is 'embarrassing' and slammed those responsible of 'taking away players dreams'. https://t.co/9uaD5kXf1h#KickOff — Kick Off (@KickOffMagazine) December 7, 2018Carlos Tevez átti frábæran feril í Evrópu þar sem hann lék meðal annars með Manchester United, Manchester City og Juventus. Hann fór heim til Boca Juniors árið 2015 og hefur spilað þar síðan fyrir utan eitt stutt Kínaævintýri árið 2017. „Það er frekar skrýtið að spila hérna í Madrid en vitum af hverju leikurinn fer fram hér. Þetta er vissulega vandræðalegt fyrir argentínsku þjóðina en ekki eins vandræðalegt fyrir okkur leikmennina. Þeir tóku samt af okku drauminn um að spila úrslitaleikinn í okkar landi,“ sagði Carlos Tevez. Fyrri leikurinn endaði með 2-2 jafntefli á heimavelli Boca Juniors og það lið sem vinnur leikinn á Santiago Bernabéu á sunnudaginn verður því meistari. „Það er mikilvægt að átta sig á því að þetta er ennþá úrslitaleikur. Þetta er óvenjulegt af því að hann er spilaður hér en við erum samt að spila til úrslita um Copa Libertadores,“ sagð Tevez. Carlos Tevez vann Copa Libertadores bikarinn með Boca Juniors þegar hann var aðeins 19 ára gamall (2003). Boca Juniors hefur unnið hann einu sinni síðan (2007) en River Plate vann hann síðast árið 2015.
Fótbolti Mest lesið Haaland í ham er Noregur hóf HM á sigri Fótbolti „Ef einhver fer að slaka á fær hann að heyra það“ Fótbolti Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf Freyr ekki lengi án starfs? Fótbolti Tárvotur Messi jafnaði HM markametið með þrennu Fótbolti Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Körfubolti Sterkasti læknir landsins Sport Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Körfubolti Viktor tekur við Haukum Körfubolti Óheppnir Víkingar mæta ungversku meisturunum Fótbolti Fleiri fréttir Freyr ráðinn þjálfari Rosenborg Tárvotur Messi jafnaði HM markametið með þrennu Haaland í ham er Noregur hóf HM á sigri „Tvær stórar ákvarðanir sem féllu á móti okkur“ „Aldrei stressaður um að þeir myndu jafna“ Emil: Byrjaði brösulega hjá okkur „Keyrðum þetta saman í gegn“ Írak - Noregur | Langþráð stund fyrir norsku þjóðina „Ef einhver fer að slaka á fær hann að heyra það“ Stjarnan - Breiðablik 4-4 | Átta marka tryllir í Garðabænum Uppgjörið: Víkingur - KR 2-0 | Víkingar enn ósigraðir á toppnum Uppgjörið: 1-0 ÍA - Valur | Viktor skoraði markið sem færði Skaganum þrjú stig Mbappé sá um Senegal fyrir Frakka Diljá Ýr komin í undanúrslit bikarsins Freyr ekki lengi án starfs? Amorim kynntur til leiks hjá AC Milan Stjarnan mætir Víkingi í undankeppni Sambandsdeildar Vestri mætir liði sem komst í umspil Meistaradeildarinnar Óheppnir Víkingar mæta ungversku meisturunum „Hvernig sem úrslitin lenda þá skilgreinir það ekki sumarið“ Svona verður útsending Sýnar Sport í kringum stórleiki kvöldsins Sjáðu Fram sækja sigur í sjö marka leik gegn KA Gylfi gerði nýjan samning við Víking Gerði „óvart“ merki rasista en slapp með skrekkinn Maður dagsins á HM: Henti póstinum í ruslið en svaraði níu mánuðum síðar „Aðstæðurnar eru erfiðar og þetta tekur á“ Hetjan grét vegna mömmu, afa og ömmu Fá reynslubolta eftir skyndilegan brottrekstur Allt hnífjafnt í G-riðli eftir fyrsta leik Írans í Bandaríkjunum Skotsýning Úrúgvæja dugði bara til jafnteflis Sjá meira