Innlent

Telur rétt að ríkissaksóknari opni rannsókn á því hvort lögbrot hafi verið framið

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingflokksformaður Pírata telur einboðið að ríkissaksóknari opni rannsókn á því hvort þingmenn hafi brotið gegn 128. gr. almennra hegningarlaga, sem fjalla um brot í opinberu starfi, með meintum hrossakaupum þingmanna með sendiherraembætti en fullyrðingar þess efnis náðust á "Klaustursupptökunum“ svokölluðu.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingflokksformaður Pírata telur einboðið að ríkissaksóknari opni rannsókn á því hvort þingmenn hafi brotið gegn 128. gr. almennra hegningarlaga, sem fjalla um brot í opinberu starfi, með meintum hrossakaupum þingmanna með sendiherraembætti en fullyrðingar þess efnis náðust á "Klaustursupptökunum“ svokölluðu. vísir/hanna
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingflokksformaður Pírata telur einboðið að ríkissaksóknari opni rannsókn á því hvort þingmenn hafi brotið gegn 128. gr. almennra hegningarlaga, sem fjalla um brot í opinberu starfi, með meintum pólitískum hrossakaupum þingmanna með sendiherraembætti en fullyrðingar þess efnis náðust á „Klaustursupptökunum“ svokölluðu. Þetta sagði Þórhildur Sunna í Silfrinu í morgun.

Samkvæmt fréttum Stundarinnar og DV sem unnar eru upp úr upptökunum kemur fram að Gunnar Bragi Sveinsson þingmaður Miðflokksins eigi að hafa greint félögum sínum frá því að Sjálfstæðisflokkurinn ætti inni hjá honum greiða fyrir að hafa skipað  Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra í embætti sendiherra í Washington.

Þegar Gunnar Bragi var inntur eftir viðbrögðum við frásögn hans á upptökunni sagðist hann hafa verið að ljúga. Þrátt fyrir það greinir Stundin frá því að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins hafi á upptökunni staðfest frásögn Gunnars með því að segja að Bjarni hafi fylgt málinu vel eftir og að Gunnar ætti inni hjá Sjálfstæðismönnum.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðsiflokksins sagði flokkinn ekki skulda neinum neitt vegna skipunarinnar.

Gunnar Bragi hefur sagt í samtali við fréttastofu að hann telji enga ástæðu fyrir þingmennina á Klaustursupptökunum að segja af sér.Vísir/Vilhelm
„Þarna er verið að tala um spillingu sem varðar við að ég tel 128. gr. almennra hegningarlaga og mér finnst einboðið að ríkissaksóknari opni rannsókn á því hvort um brot á þessu ákvæði hafi verið að ræða,“ segir Þórhildur Sunna sem segir að á upptökunum hafi spillingin verið játuð og staðfest.

„Og að sjálfsögðu á að opna rannsókn á því hvort það sé búið að brjóta gegn þessu ákvæði.“

128. gr. almennra hegningarlaga: „Ef opinber starfsmaður, [alþingismaður eða gerðarmaður] 1) heimtar, tekur við eða lætur lofa sér eða öðrum gjöfum eða öðrum ávinningi, sem hann á ekki tilkall til, í sambandi við framkvæmd starfa síns, þá skal hann sæta … 2) fangelsi allt að 6 árum, eða sektum, ef málsbætur eru. 

[Sömu refsingu skal sæta erlendur opinber starfsmaður, erlendur kviðdómandi, erlendur gerðarmaður, maður sem á sæti á erlendu fulltrúaþingi sem hefur stjórnsýslu með höndum, starfsmaður alþjóðastofnunar, maður sem á sæti á þingi slíkrar stofnunar eða á opinberu löggjafarþingi í erlendu ríki, dómari sem á sæti í alþjóðlegum dómstóli eða starfsmaður við slíkan dómstól, sem heimtar, tekur við eða lætur lofa sér eða öðrum gjöfum eða öðrum ávinningi, sem hann á ekki tilkall til, í sambandi við framkvæmd starfa síns.]“

Siðanefnd komi saman sem fyrst

Þórhildur Sunna segir að það sé mikilvægt að Siðanefndin komi saman sem allra fyrst og helst strax á mánudag til að vinna í málinu.

„Þarna erum við aðtala um hegðun þingmanna gagnvart samstarfsfólki sínu og það stendur fólkinu í forsætisnefnd allt of nærri, held ég allavega að mínu viti, til þess að vera dómbært á það sjálft. Við viljum að sjálfsögðu óhlutdræga málsmeðferð og að það sé hafið yfir allan vafa að þetta sé skoðað án fordóma til þess einmitt að það sé hægt að leggja skýrt traust á niðurstöðuna.“

Þórhildur segir að það sé mikilvægt að utanaðkomandi aðili skoði málið því það standi þingmönnum of nærri.

„Við erum kannski ekki alveg rétti aðilinn til að dæma um þetta akkúrat núna vegna þess að við erum flest hver í sárum út af þessum ummælum,“ segir Þórhildur Sunna.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×