Man City ætlar að fara varlega með Kevin de Bruyne Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. nóvember 2018 11:30 Kevin de Bruyne. Vísir/Getty
Kevin de Bruyne er ekki enn byrjaður að spila með liði Manchester City eftir að hann meiddist í haust og það nýjasta úr herbúðum Englandsmeistaranna er að belgíski landsliðsmaðurinn spili ekki með liðinu alveg á næstunni. Manchester City ætlar nefnilega að fara mjög varlega með Kevin de Bruyne í endurkomunni og það gætu verið tvær vikur í hann ennþá. Telegraph segir frá þessu og telur að Kevin de Bruyne gæti misst af toppslagnum á móti Chelsea í næsta mánuði.Man City to play it safe with Kevin de Bruyne after injury ravaged season https://t.co/VQmqT1W9rw — Telegraph Football (@TeleFootball) November 29, 2018Manchester City hefur haldið sínu striki þrátt fyrir fjarveru Belgans en stefnan er að passa upp á hann þar sem Kevin de Bruyne hefur verið afar óheppinn með meiðsli á þessu tímabili. De Bruyne hefur aðeins spilað fimm leiki á leiktíðinni en hann spilaði síðast á móti Fulham í enska deildabikarnum 1. nóvember síðastliðinn. Þetta er í annað skiptið sem hann dettur út á leiktíðinni því hann meiddist líka í fyrsta leik á móti Arsenal í ágúst og spilaði þá ekki aftur fyrr en í seinni hluta október. De Bruyne náði aðeins þremur leikjum áður en hann meiddist aftur. Hinn 27 ára gamli Kevin de Bruyne er einn af mörgum stjörnum í ensku úrvalsdeildinni sem hafa ekki komist í besta form eftir að hafa eytt nær öllu sumrinum á HM í Rússlandi. De Bruyne mun missa af leikjum á móti Bournemouth og Watford og svo missir hann líklega af Chelsea-leiknum líka. Kevin de Bruyne skoraði í eina Meistaradeildarleiknum sínum á leiktíðinni en hefur ekki náð að koma að marki í þremur leikjum í ensku úrvalsdeildinni. Á síðasta tímabili þá var hann með 8 mörk og 16 stoðsendingar í 37 leikjum í ensku úrvalsdeildinni og á fyrsta tímabili Pep Guardiola var hann með 6 mörk og 20 stoðsendingar í 36 deildarleikjum.
Enski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Fleiri fréttir Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Sjá meira